17. fundur
17. fundur
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
09.03.2017
Kl. 17:00 - 17:50
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristinn Guðlaugsson - formaður
- Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
- Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
- Kristín Harðardóttir - aðalmaður
- Þóroddur Bjarnason - aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
Ritari
- Laufey Ólafsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1605075
01
Skólastarf tónlistarskóla 2016-2017
Skólastjóri fór yfir skólastarfið það sem af er árinu. Skólastarfið fór af stað með miklum krafti í janúar, nemendur komu fram á verðlaunaafhendingu fyrir val á íþróttamanni ársins og á safnanótt. B blásarasveit skólans tók þátt í landsmóti skólahljómsveita á Akranesi, dagur tónlistarskólans var haldinn hátíðlegur þann 11. febrúar sl. og voru haldnir 11 tónleikar í skólanum þann dag. 20 nemendur skólans tóku þátt í Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna og er það mesti fjöldi nemenda sem tekið hefur þátt í því verkefni frá upphafi. Framundan eru tónleikar og Nótan 2017.
Málsnúmer 1703060
02
Gjaldskrá 2017-2018
Gert er ráð fyrir að gjaldskráin hækki um 2,4% sem er í samræmi við þær gjaldskrárhækkanir sem urðu um síðastliðin áramót.
Gjaldskráin verður afgreidd á næsta fundi nefndarinnar.
Málsnúmer 1703063
03
Skólanámskrá tónlistarskólans
Skólastjóri kynnti skólanámskrá tónlistarskólans. Unnið er að því að heimasíða tónlistarskólans endurspegli námskrána. Í aðalnámskrá tónlistarskóla kemur eftirfarandi fram: Hlutverk skólanámskrár er að stuðla að árangursríku skólastarfi með því að veita upplýsingar og yfirsýn, auðvelda endurmat áætlana og tryggja sem farsælast tónlistaruppeldi. Við gerð skólanámskráa er tónlistarskólum ætlað að taka mið af stefnumörkun og markmiðum aðalnámskrár tónlistarskóla.
Málsnúmer 1703062
04
Dagur tónlistarskólans
Dagur tónlistarskólans var haldinn laugardaginn 11. febrúar. Haldnir voru 11 stuttir tónleikar auk annarra viðburða í skólanum og var dagskrá frá 10:00 ? 15:00.
Málsnúmer 1610112
05
Íbúakönnun - þjónustukönnun 2016
Lagðar fram niðurstöður í þjónustukönnun meðal íbúa sem fram fór í nóvember