Skólastarf tónlistarskóla 2016-2017
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
17. fundur
Skólastjóri fór yfir skólastarfið það sem af er árinu. Skólastarfið fór af stað með miklum krafti í janúar, nemendur komu fram á verðlaunaafhendingu fyrir val á íþróttamanni ársins og á safnanótt. B blásarasveit skólans tók þátt í landsmóti skólahljómsveita á Akranesi, dagur tónlistarskólans var haldinn hátíðlegur þann 11. febrúar sl. og voru haldnir 11 tónleikar í skólanum þann dag. 20 nemendur skólans tóku þátt í Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna og er það mesti fjöldi nemenda sem tekið hefur þátt í því verkefni frá upphafi. Framundan eru tónleikar og Nótan 2017.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
02
16. fundur
Skólastjóri sagði frá miklu og fjölbreyttu starfi í haust. Blásarasveitir hafa farið í æfingabúðir og tekið þátt í viðburðum s.s. óskalögum þjóðarinnar í Hörpu. Hluti nemenda rytmadeildar tók þátt í „Hljómanótt“ í Reykjanesbæ. Í október bauðst öllum píanónemendum skólans að taka þátt í píanómaraþoni í skólanum á laugardegi og tók fjölmargir nemendur og allir píanókennarar skólans þátt í því. Þá var masterklass fyrir framhaldsnemendur í píanódeild í byrjun nóvember. Í október voru haldnir kennaratónleikar í skólanum, en menningar- og safnanefnd Garðabæjar styrkti tónleikana. Á þessum fyrstu kennaratónleikum komu fram allir kennarar rytmadeildar skólans og voru tónleikarnir vel sóttir. Framundan eru fjölmargir jólatónleikar og tónfundir í skólanum. Tónlistarskólinn býður líkt og undanfarin ár öllum nemendum í 2. og 3. bekk í grunnskólum bæjarins á jólastund í skólanum 13. desember nk. Þá munu nemendur skólans koma fram á ýmsum viðburðum í bænum s.s. þegar ljós verða kveikt á jólatrénu á Garðatorgi, jólasamkomu eldri borgara ofl.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
03
15. fundur
Tónlistarskólinn var settur á sal skólans fimmtudaginn 25. ágúst sl. Skólastjóri fór yfir fjölda nemenda sem verða um 525 og kennarar við skólann verða 48. 4 kennarar eru í leyfi að hluta í vetur og hefur verið ráðið í þeirra stöður. Skólinn er með 6 starfsstöðvar.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
04
14. fundur
Skráningar fyrir næsta skólaár hafa gengið vel. Fram kom að ekki er um að ræða miklar breytingar í starfsmannahóp skólans fyrir næsta skólaár. Skólastjóri fór yfir kennsluhúsnæði í grunnskólum bæjarins. Tónlistarskólinn verður settur fimmtudaginn 25. ágúst.