Beint í efni

14. fundur

12.05.2016
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

14. fundur

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

12.05.2016

Kl. 17:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Kristinn Guðlaugsson - formaður
  • Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Guðrún Sesselja Arnardóttir - aðalmaður
  • Paresh Manloi - varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri

Ritari

  • Laufey Ólafsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1602376

01

Skóladagatal 2016-2017

Skólastjóri fór yfir drög að skóladagatali 2016-2017 og helstu dagsetningar. Fram kom að tónlistarskólinn verður settur 25. ágúst og skólaslit verða 26. maí 2017. Jóla- og páskafrí ásamt vetrarfríi eru samræmd skóladagatali grunnskólanna en vetrarfrí er vikuna 20. - 24. febrúar.

Skólanefndin samþykkir skóladagatalið fyrir sitt leiti.

Málsnúmer 1506028

02

Skólastarf tónlistarskóla 2015-2016

Vel heppnað landsmót skólahljómsveita var haldið í Garðabæ um mánaðarmótin apríl/maí. Landsmótið heppnaðist í alla staði mjög vel og endaði með stórtónleikum í Ásgarði 1. maí. Skólaslit verða föstudaginn 27. maí.

Málsnúmer 1605075

03

Skólastarf tónlistarskóla 2016-2017

Skráningar fyrir næsta skólaár hafa gengið vel. Fram kom að ekki er um að ræða miklar breytingar í starfsmannahóp skólans fyrir næsta skólaár. Skólastjóri fór yfir kennsluhúsnæði í grunnskólum bæjarins. Tónlistarskólinn verður settur fimmtudaginn 25. ágúst.

Málsnúmer 1605076

04

Skólagjöld

Fyrir fundinum lá tillaga að gjaldskrá fyrir skólaárið 2016-2017. Gerir gjaldskráin ráð fyrir 3,2% hækkun gjalda sem eru í samræmi við þær gjaldskrárhækkanir sem urðu um síðastliðin áramót.

Skólanefndin samþykkir gjaldskrá Tónlistarskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2016-2017.

Málsnúmer 1510223

05

Íbúakönnun - þjónustukönnun 2015

Lagðar fram niðurstöður í þjónustukönnun meðal íbúa sem fram fór í nóvember.