Skólastarf tónlistarskóla 2015-2016
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
14. fundur
Vel heppnað landsmót skólahljómsveita var haldið í Garðabæ um mánaðarmótin apríl/maí. Landsmótið heppnaðist í alla staði mjög vel og endaði með stórtónleikum í Ásgarði 1. maí. Skólaslit verða föstudaginn 27. maí.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
02
13. fundur
Skólastjóri fór yfir það sem er á döfinni í tónlistarskólanum fram á vorið. Má þar nefna þátttöku í Nótunni, tónleikar blásarasveita í mars og stórsveitar í apríl, námskeið fyrir Suzuki píanónemendur í tónlistarskólanum í apríl og samstarfsverkefni rytmískrar deildar skólans við Tónlistarskóla Kópavogs og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar um samspil sem fer fram einu sinni í hverjum skóla fyrir sig á vorönn.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
03
12. fundur
Skólastjóri fór yfir að framundan eru fjöldi jólatónleika ásamt því að nemendur koma fram í sveitarfélaginu s.s. á Ísafold, skólinn býður nemendum úr 2. og 3. bekk í grunnskólum bæjarins í heimsókn í tónlistarskólann í jólastund 9. desember.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
04
11. fundur
Skólastjóri sagði m.a. frá því að Helga Sigríður Eyþórsdóttir Kolbeins, fór með sigur af hólmi í flokki 10 ára og yngri í EPTA píanókeppninni þetta árið. Óskar nefndin skólanum og nemandanum til hamingju með glæsilegan árangur.
Skólastarfið hefur verið blómlegt það sem af er, fjöldi tónleika hafa verið haldnir bæði í Kirkjulundi og á Álftanesi. Blásarasveitin fór í æfingabúðir á Álftanes, Suzukiæfingadagur fyrir strengjanemendur í samstarfi við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Tónlistarskóla Kópavogs fór fram í Tónlistarskóla Garðabæjar sl. laugardag og svo má lengi telja. Framundan eru fjöldi jólatónleika ásamt því að nemendur koma fram í sveitarfélaginu s.s. á Ísafold, við fáum nemendur úr 2. og 3. bekk grunnskóla bæjarins í heimsókn til okkar í jólastund 9. desember nk. og svo má lengi telja.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
05
10. fundur
Tónlistarskólinn var settur á sal skólans miðvikudaginn 26. ágúst síðastliðinn og var sérlega góð mæting á skólasetninguna bæði af foreldrum og nemendum. Skólastjóri fór yfir fjölda nemenda sem verða um 530 og kennara við skólann verða 49. Þrír kennarar eru í leyfi að hluta í vetur og hefur verið ráðið í þeirra stöður. Fram kom hjá skólastjóra að búið er að taka í notkun þrjár nýjar kennslustofur fyrir tónlistarkennslu í nýrri viðbyggingu við Hofsstaðaskóla og að kennsla verður að nýju í húsnæði Garðaskóla. Kennslustofum í Flataskóla fækkar hinsvegar úr fjórum í tvær. Skólinn er nú með 7 starfsstöðvar. Komið hefur verið á formlegu samstarfi milli Tónlistarskóla Garðabæjar og Hafnarfjarðar, Kópavogs og Tónskóla Sigursveins í tónfræðagreinum á framhaldsstigi.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
06
9. fundur
Skráningar fyrir næsta skólaár hafa gengið vel. Fram kom að ekki er um að ræða miklar breytingar í starfsmannahóp skólans fyrir næsta skólaár. Skólastjóri fór yfir kennsluhúsnæði í grunnskólum bæjarins. Tónlistarskólinn verður settur miðvikudaginn 26. ágúst. $line$Samtök íslenskra skólahljómsveita (SÍSL) hefur áhuga á að halda landsmót skólahljómsveita í Garðabæ 29. apríl - 1. maí 2016. Skólanefnd leggur til við bæjarstjórn að koma til móts við mótshaldara varðandi aðstöðumál og nýtingu á húsnæði bæjarins.