Beint í efni

11. fundur

12.11.2015
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

11. fundur

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

12.11.2015

Kl. 17:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Kristinn Guðlaugsson - formaður
  • Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Kristín Harðardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri

Ritari

  • Laufey Ólafsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1506028

01

Skólastarf tónlistarskóla 2015-2016

Skólastjóri sagði m.a. frá því að Helga Sigríður Eyþórsdóttir Kolbeins, fór með sigur af hólmi í flokki 10 ára og yngri í EPTA píanókeppninni þetta árið. Óskar nefndin skólanum og nemandanum til hamingju með glæsilegan árangur.

Skólastarfið hefur verið blómlegt það sem af er, fjöldi tónleika hafa verið haldnir bæði í Kirkjulundi og á Álftanesi. Blásarasveitin fór í æfingabúðir á Álftanes, Suzukiæfingadagur fyrir strengjanemendur í samstarfi við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Tónlistarskóla Kópavogs fór fram í Tónlistarskóla Garðabæjar sl. laugardag og svo má lengi telja. Framundan eru fjöldi jólatónleika ásamt því að nemendur koma fram í sveitarfélaginu s.s. á Ísafold, við fáum nemendur úr 2. og 3. bekk grunnskóla bæjarins í heimsókn til okkar í jólastund 9. desember nk. og svo má lengi telja.

Málsnúmer 1508487

02

Starfsmannakönnun Tónlistarskóla Garðabæjar

Fram kom hjá skólastjóra búið er að leggja fyrir starfsmannakönnun og eru niðurstöður að vænta um miðjan desember. Niðurstöðurnar verða lagðar fram á næsta fundi nefndarinnar.

Málsnúmer 1503196

03

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2016 (2017-2019)

Farið var yfir helstu liði fjárhagsáætlunar tónlistarskólans fyrir næsta ár en fyrri umræða fór fram í bæjarstjórn 5. nóvember.

Skólanefnd ítrekar það sem áður hefur komið fram að aukið fjármagn verði sett í hljóðfærakaup í fjárhagsáætlun 2016 til að bæta og endurnýja hljóðfærakost skólans.

Málsnúmer 1511073

04

Landsmót skólahljómsveita 2016

Lagt var fram bréf skólastjóra tónlistarskólans og formanns samtaka íslenskra skólahljómsveita. Í bréfinu er sagt frá því að fyrirhugað er að halda landsmót Samtaka íslenskra skólahljómsveita í Garðabæ dagana 29. apríl til 1. maí 2016.

Málsnúmer 1511103

05

Aðgerðaáætlun og jafnréttisáætlun Tónlistarskóla Garðabæjar

Skólastjóri kynnti aðgerðar- og jafnréttisáætlun tónlistarskólans.