Landsmót skólahljómsveita 2016
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
13. fundur
Skólastjóri fór yfir þá vinnu er snýr að Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi landsmótið. Linda Margrét Sigfúsdóttir deildarstjóri er verkefnastjóri skólans í þessu verkefni.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
02
12. fundur
Umræður urðu um landsmót skólahljómsveita sem fyrirhugað er að halda í Garðabæ helgina 29. apríl ? 1. maí 2016. Gera má ráð fyrir að á milli 5-700 tónlistarskólanemendur komi til með að sækja landsmótið. Að auki fylgir þeim einnig góður hópur bæði kennara og foreldra. Gera má ráð fyrir stórum tónleikum sunnudaginn 1. maí. Hópurinn kemur væntanlega til með að gista í skólahúsnæði bæjarins.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
03
11. fundur
Lagt var fram bréf skólastjóra tónlistarskólans og formanns samtaka íslenskra skólahljómsveita. Í bréfinu er sagt frá því að fyrirhugað er að halda landsmót Samtaka íslenskra skólahljómsveita í Garðabæ dagana 29. apríl til 1. maí 2016.
Bæjarráð Garðabæjar
04
43. (1711). fundur
Í bréfinu er sagt frá því að fyrirhugað er að halda landsmót Samtaka íslenskra skólahljómsveita í Garðabæ dagana 29. apríl til 1. maí 2016.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindi bréfritara um gistiaðstöðu í grunnskólum bæjarins og aðgang að sundlaugum. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.