13. fundur
13. fundur
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
25.02.2016
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristinn Guðlaugsson - formaður
- Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
- Kristín Harðardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
Ritari
- Laufey Ólafsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1602376
01
Skóladagatal 2016-2017
Verið er að vinna að skóladagatali fyrir skólana í Garðabæ. Gera má ráð fyrir að skólasetning tónlistarskólans verði miðvikudaginn 24. ágúst 2016.
Málsnúmer 1511073
02
Landsmót skólahljómsveita 2016
Skólastjóri fór yfir þá vinnu er snýr að Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi landsmótið. Linda Margrét Sigfúsdóttir deildarstjóri er verkefnastjóri skólans í þessu verkefni.
Málsnúmer 1506028
03
Skólastarf tónlistarskóla 2015-2016
Skólastjóri fór yfir það sem er á döfinni í tónlistarskólanum fram á vorið. Má þar nefna þátttöku í Nótunni, tónleikar blásarasveita í mars og stórsveitar í apríl, námskeið fyrir Suzuki píanónemendur í tónlistarskólanum í apríl og samstarfsverkefni rytmískrar deildar skólans við Tónlistarskóla Kópavogs og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar um samspil sem fer fram einu sinni í hverjum skóla fyrir sig á vorönn.
Málsnúmer 1508487
04
Starfsmannakönnun Tónlistarskóla Garðabæjar
Búið er að vinna úr og kynna niðurstöður starfsmannakönnunar fyrir kennurum skólans. Inga Þóra Þórisdóttir mannauðsstjóri lagði könnunina fyrir og kynnti fyrir starfsfólki skólans. Skólastjóri fór yfir helstu niðurstöður sem eru afar jákvæðar fyrir stjórn skólans.