9. fundur
9. fundur
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
í Tónlistarskóla Garðabæjar, Kirkjulundi
04.06.2015
Kl. 17:15 - 18:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristinn Guðlaugsson - formaður
- Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
- Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
- Kristín Harðardóttir - aðalmaður
- Guðrún Sesselja Arnardóttir - aðalmaður
- Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
Ritari
- Laufey Ólafsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1408463
01
Foreldra- og þjónustukannanir
Skólastjóri fór yfir helstu niðurstöður úr foreldra- og þjónustukönnun sem framkvæmd var í marsmánuði síðast liðnum. Helstu niður stöður eru:$line$?97% eru í heildina ánægð með tónlistarskólann$line$?90% voru mjög eða frekar ánægði með kennsluna $line$?92% ánægja með viðmót kennaranna$line$?94% barna líður alltaf eða oftast vel í tónlistarskólanum$line$?91% eru ánægð með samskipti við skólann$line$?Tæplega 90% foreldra finnst námið við tónlistarskólann uppfylla þær væntingar sem þeir höfðu áður en námið hófst $line$?81% telja að námið uppfylli væntingar barnsins.$line$Stefnt er að leggja könnun fyrir kennara skólans í upphafi næasta skólaárs.
Málsnúmer 1408461
02
Skólastarf tónlistarskóla 2014-2015
Skólaslit tónlistarskólans fóru fram föstudaginn 29. maí. Fram kom hjá skólastjóra að fimm burtfarartónleikar voru frá tónlistarskólanum nú í vor. Nemendur er sóttu nám við skólann voru 540 og 52 kennarar störfuðu við skólann.
Málsnúmer 1506028
03
Skólastarf tónlistarskóla 2015-2016
Skráningar fyrir næsta skólaár hafa gengið vel. Fram kom að ekki er um að ræða miklar breytingar í starfsmannahóp skólans fyrir næsta skólaár. Skólastjóri fór yfir kennsluhúsnæði í grunnskólum bæjarins. Tónlistarskólinn verður settur miðvikudaginn 26. ágúst. $line$Samtök íslenskra skólahljómsveita (SÍSL) hefur áhuga á að halda landsmót skólahljómsveita í Garðabæ 29. apríl - 1. maí 2016. Skólanefnd leggur til við bæjarstjórn að koma til móts við mótshaldara varðandi aðstöðumál og nýtingu á húsnæði bæjarins.
Málsnúmer 1506029
04
Samstarf Tónlistarskóla Garðabæjar við framhaldsskóla
Skólastjóri sagði frá möguleikum nemenda á að nýta nám tónlistarskólans í framhaldsskólum. FG metur tónlistarnám frá tónlistarskólanum bæði í vali og kjörsviði til allt að 24 einingum en nemendur hafa ekki möguleika að útskrifast af tónlistarbraut við skólann. Skólanefnd lýsir yfir áhyggjum af því að ekki er samþykkt tónlistarbraut við framhaldsskóla af ráðuneyti mennta- og menningarmála.