Samstarf Tónlistarskóla Garðabæjar við framhaldsskóla
Málsnúmer 1506029
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
9. fundur
Skólastjóri sagði frá möguleikum nemenda á að nýta nám tónlistarskólans í framhaldsskólum. FG metur tónlistarnám frá tónlistarskólanum bæði í vali og kjörsviði til allt að 24 einingum en nemendur hafa ekki möguleika að útskrifast af tónlistarbraut við skólann. Skólanefnd lýsir yfir áhyggjum af því að ekki er samþykkt tónlistarbraut við framhaldsskóla af ráðuneyti mennta- og menningarmála.