Beint í efni

Íbúakönnun - þjónustukönnun 2015

Málsnúmer 1510223

Ferill máls

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

01

14. fundur

Lagðar fram niðurstöður í þjónustukönnun meðal íbúa sem fram fór í nóvember.

Fjölskylduráð Garðabæjar

02

3. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1510223 Íbúakönnun-þjónustukönnun 2015. Fjölskylduráð fjallar um könnunina. Fram kemur að íbúar 19 sveitarfélaga á landinu voru spurðir um afstöðu þeirra til ólíkra þátta í þjónustu síns sveitarfélags. Garðabær lendir í fyrsta eða öðru sæti í níu spurningum af þrettán í könnuninni. Garðabær fær hæstu einkunn allra sveitarfélaga þegar íbúar eru spurðir hversu ánægðir þeir eru með sveitarfélagið sitt sem stað til að búa á. Helstu niðurstöður könnunarinnar hafa verið birtar á heimasíðu Garðabæjar.

Fjölskylduráð Garðabæjar

03

2. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1510223. Bæjarráð vísar til kynningar í nefndum könnun Gallup á ánægju íbúa með þjónustu sveitarfélaga landsins. Lagt fram og óskað eftir nánari kynningu á næsta fundi.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

14. fundur

Lögð var fram til kynningar könnun Capacent sem var gerð haustið 2015 á ánægju íbúa með þjónustu sveitarfélaga landsins og samanburð milli sveitarfélaga ásamt breytingum frá fyrri mælingum.
Farið var yfir helstu þætti könnunarinnar.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

4. fundur

Lagt fram.

Leikskólanefnd Garðabæjar

06

16. fundur

Nefndin fagnar niðurstöðum könnunarinnar sem staðfestir það góða starf sem unnið er í leikskólum Garðabæjar.

Ungmennaráð Garðabæjar

07

15. fundur

Að beiðni bæjarstjóra voru niðurstöður könnunar kynntar fyrir fulltrúum.

Bæjarráð Garðabæjar

08

3. (1720). fundur

Lögð fram könnun Gallup á ánægju íbúa með þjónustu sveitarfélaga landsins og samanburð milli sveitarfélaga ásamt breytingum frá fyrri mælingum.

Bæjarráð vísar könnuninni til kynningar í nefndum bæjarins.

Fylgiskjöl