3. (1720). fundur
3. (1720). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
26.01.2016
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1601395
01
Bréf Álftaneskórsins um styrk vegna tónleikaferðalags, dags. 13.01.15.
Málsnúmer 1601416
02
Endurnýjun samkomulags við Félags eldri borgara á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að endurnýja samkomulag við Félag eldri borgara á Álftanesi um félags- og tómstundastarf þar sem árlegt framlag verður kr. 1.000.000 árin 2016 og 2017.
Málsnúmer 1405227
03
Tillaga landeiganda Arnarness um samkomulag vegna jarðarréttinda.
Bæjarráð getur ekki fallist á tillöguna sem lausn um meintan ágreining aðila enda felst í henni verulegt frávik frá þeim hugmyndum sem Garðabær hefur kynnt til lausnar í málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1601467
04
Erindi UMF-Stjörnunnar um lækkun fasteignagjalda árið 2016
Bæjarráð samþykkir að veita UMF-Stjörnunni styrk að fjárhæð kr. 1.527.900 til greiðslu fasteignagjalda árið 2016.
Málsnúmer 1510223
05
Þjónustukönnun 2015 - Garðabær
Lögð fram könnun Gallup á ánægju íbúa með þjónustu sveitarfélaga landsins og samanburð milli sveitarfélaga ásamt breytingum frá fyrri mælingum.
Bæjarráð vísar könnuninni til kynningar í nefndum bæjarins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1601475
06
Samantekt fjármálastjóra vegna kostnaðar við málaflokk fatlaðs fólks 2011 - 2015.
Lögð fram samantekt fjármálastjóra um þróun tekna og gjalda vegna málaflokks fatlaðs fólks frá því að sveitarfélög yfirtóku rekstur málaflokksins af ríkinu árið 2011.