Beint í efni

2. fundur

10.03.2016
Fjölskylduráð Garðabæjar

2. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

10.03.2016

Kl. 16:30 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sturla D Þorsteinsson - formaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður

Starfsmenn

  • Anna Karin Juliussen - félagsráðgjafi
  • Eva Ósk Ármannsdóttir

Ritari

  • Bergljót Sigurbjörnsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1602404

01

Umsókn um sérstakar húsaleigubætur

Tekið er fyrir mál nr. 1602404 málskot í tengslum við synjun fjölskyldusviðs á umsókn um sérstakar húsaleigubætur. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1601115

02

Umsókn um fjárhagsaðstoð - fyrirframgreiðslu húsnæðis

Tekið er fyrir mál nr. 1601115 málskot vegna synjunar fjölskyldusviðs á umsókn um fjárhagsaðstoð í formi láns í tengslum við fyrirframgreiðslu húsnæðis. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1602313

03

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið fyrir mál nr. 1602303 málskot vegna synjunar fjölskyldusviðs á fjárhagsaðstoð. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1512119

04

Stuðningsfjölskylda - úttekt

Tekið er fyrir mál nr. 1512119 beiðni frá Reykjavík um umsögn í tengslum við umsókn um að gerast stuðningsfjölskylda. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1602226

05

Umsókn um afbrigði frá reglum um leikskólavist

Tekið er fyrir mál nr. 1602226 beiðni um leikskólavist í Garðabæ fyrir börn sem jafnframt eru í leikskóla úti á landi. Bæjarráð vísaði erindinu til umfjöllunar hjá fjölskylduráði. Fyrir fundinum liggur m.a. skýrsla innanríkisráðherra um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum og leiðbeinandi álit Sambands íslenkra sveitarfélaga vegna tvöfaldrar leikskólavistar.

Í skýrslu innanríkisráðherra kemur m.a. fram að þó að ráða megi af þeim rannsóknum sem skoðaðar voru að börnum sem búa til skiptis á heimilum beggja foreldra líði almennt betur en þeim sem búa bara hjá öðru foreldrinu, þá hentar jöfn búseta ekki öllum börnum. Fram kemur í skýrslunni að ein af forsendunum fyrir jafnri búsetu sé að á milli foreldra sé gott samstarf og nálægð milli heimila þannig að börn séu í færi við skóla, tómstundir og vini frá báðum heimilum.

Í áliti Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur einnig fram að það er ekki aðalatriðið fyrir velferð barna að tíma þeirra sé skipt jafnt milli heimila foreldra þeirra.

Fjölskylduráð fjallar um málið. Ráðið tekur undir leiðbeinandi álit Sambands íslenskra sveitarfélaga, þar sem fram kemur m.a. að foreldrar sem fara saman með forsjá barns en búa ekki saman eigi alltaf að leitast við að hafa samráð áður en teknar eru afgerandi ákvarðanir um málefni barns er varða daglegt líf t.d. um hvar það skuli eiga lögheimili innanlands, um val á leikskóla, grunnskóla og daggæslu, um venjulega eða nauðsynlega heilbrigðisþjónustu og reglubundið tómstundastarf. Í slíkum málum þarf að huga að því að nægt leikskólarými sé til staðar og mönnun leikskóla sé með þeim hætti að ekki hljótist af verulegur viðbótarkostnaður. Þá geta sveitarfélög samið sín á milli um greiðslur fyrir hvert tilvik fyrir sig.

Ráðið leggur áherslu á mikilvægi þess að foreldrar sýni nauðsynlegan sveigjanleika þannig að samvistir foreldra við börnin henti þörfum þeirra og aðstæðum hverju sinni.

Málsnúmer 1511354

06

Tilkynning um breytingar á lögræðislögum

Tekið er fyrir mál nr. 1511354 tilkynning Innanríkisráðuneytis um breytingar á lögræðislögum sem bæjarráð vísar til kynningar og skoðunar í fjölskylduráði. Lagt fram og rætt.

Málsnúmer 1602105

07

Niðurskurður á sviði mennta- og frístundamála við börn

Tekið er fyrir mál nr. 1602105 bréf umboðsmanns barna dags. 4. febrúar sl. varðandi niðurskurð á sviði mennta- og frístundamála barna sem bæjarráð vísar til kynningar í fjölskylduráði. Lagt fram og rætt.

Málsnúmer 1512265

08

Frítíminn er okkar fag - skýrsla ráðstefnu 16. okt 2015

Tekið er fyrir mál nr. 1512265. Bæjarráð vísar bréfi starfshóps um æskulýðsmál varðandi niðurstöður ráðstefnunnar "Frítími er okkar fag" til kynningar í fjölskylduráði. Lagt fram og rætt.

Málsnúmer 1510223

09

Íbúakönnun - þjónustukönnun 2015

Tekið er fyrir mál nr. 1510223. Bæjarráð vísar til kynningar í nefndum könnun Gallup á ánægju íbúa með þjónustu sveitarfélaga landsins. Lagt fram og óskað eftir nánari kynningu á næsta fundi.