Beint í efni

Afgreiðsla leikskólanefndar um beiðni um leiksólavist fyrir barn með lögheimili utan Garðabæjar.

Málsnúmer 1602226

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

17. (1734). fundur

Bæjarráð getur fallist á að verða við erindinu enda sé leikskólarými fyrir hendi og ekki hljótist af aukakostnaður.

Fylgiskjöl

Leikskólanefnd Garðabæjar

03

17. fundur

Leikskólanefnd ræddi mögulegar útfærslur með tillitil til biðlista á viðkomandi leikskóla og greiðslutilhögun. Vísað er til gildandi reglna.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

04

2. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1602226 beiðni um leikskólavist í Garðabæ fyrir börn sem jafnframt eru í leikskóla úti á landi. Bæjarráð vísaði erindinu til umfjöllunar hjá fjölskylduráði. Fyrir fundinum liggur m.a. skýrsla innanríkisráðherra um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum og leiðbeinandi álit Sambands íslenkra sveitarfélaga vegna tvöfaldrar leikskólavistar.
Í skýrslu innanríkisráðherra kemur m.a. fram að þó að ráða megi af þeim rannsóknum sem skoðaðar voru að börnum sem búa til skiptis á heimilum beggja foreldra líði almennt betur en þeim sem búa bara hjá öðru foreldrinu, þá hentar jöfn búseta ekki öllum börnum. Fram kemur í skýrslunni að ein af forsendunum fyrir jafnri búsetu sé að á milli foreldra sé gott samstarf og nálægð milli heimila þannig að börn séu í færi við skóla, tómstundir og vini frá báðum heimilum.
Í áliti Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur einnig fram að það er ekki aðalatriðið fyrir velferð barna að tíma þeirra sé skipt jafnt milli heimila foreldra þeirra.
Fjölskylduráð fjallar um málið. Ráðið tekur undir leiðbeinandi álit Sambands íslenskra sveitarfélaga, þar sem fram kemur m.a. að foreldrar sem fara saman með forsjá barns en búa ekki saman eigi alltaf að leitast við að hafa samráð áður en teknar eru afgerandi ákvarðanir um málefni barns er varða daglegt líf t.d. um hvar það skuli eiga lögheimili innanlands, um val á leikskóla, grunnskóla og daggæslu, um venjulega eða nauðsynlega heilbrigðisþjónustu og reglubundið tómstundastarf. Í slíkum málum þarf að huga að því að nægt leikskólarými sé til staðar og mönnun leikskóla sé með þeim hætti að ekki hljótist af verulegur viðbótarkostnaður. Þá geta sveitarfélög samið sín á milli um greiðslur fyrir hvert tilvik fyrir sig.
Ráðið leggur áherslu á mikilvægi þess að foreldrar sýni nauðsynlegan sveigjanleika þannig að samvistir foreldra við börnin henti þörfum þeirra og aðstæðum hverju sinni.

Bæjarráð Garðabæjar

05

6. (1723). fundur

Í umsókninni er farið fram á leikskólavist í Garðabæ fyrir börn sem jafnframt eru í leikskóla í út á landi þar sem annað barnið á lögheimili.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar fjölskylduráðs og leikskólanefndar.