Beint í efni

6. (1723). fundur

16.02.2016
Bæjarráð Garðabæjar

6. (1723). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

16.02.2016

Kl. 08:00 - 08:35

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - varamaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - varamaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1601570

01

Bréf foreldra barna í skólum Hjallastefnunnar í Garðabæ varðandi áframhaldandi stuðning við skólann, dags. 08.02.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skólanefndar og til nánari skoðunar fræðslu- og menningarsviðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1602209

02

Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis fyrir veitingastað á Garðatorgi

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 1602226

03

Umsókn um afbrigði frá reglum um leikskólavist vegna skiptrar búsetu.

Í umsókninni er farið fram á leikskólavist í Garðabæ fyrir börn sem jafnframt eru í leikskóla í út á landi þar sem annað barnið á lögheimili.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar fjölskylduráðs og leikskólanefndar.

Málsnúmer 1602252

04

Beiðni Félags eldri borgara í Garðabæ um styrk vegna ársins 2016, dags. 10.02.16.

Bæjarráð samþykkir að veita Félagi eldri borgara í Garðabæ starfstyrk að fjárhæð kr. 400.000 á árinu 2016.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1509083

05

Drög að skjalastefnu Garðabæjar

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja skjalastefnu Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1602254

06

Tillaga um breytingu á gjaldskrá ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi tillögu.

Gjald fyrir hverja ferð hjá ferðaþjónustu fatlaðs fólks skal miðast við hálft almennt gjald hjá Strætó bs. samkvæmt gjaldskrá hverju sinni.“

Tillagan skal taka gildi 1. mars 2016.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1602079

07

Bréf Hjallastefnunnar um breytingar á samningi vegna reksturs grunnskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ, dags. 11.02.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skólanefndar og til nánari skoðunar fræðslu- og menningarsviðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1601430

08

Undirbúningur framkvæmda við endurbætur sundlaugar samkvæmt fjárhagsáætlun 2016

Bæjarverkfræðingur kynnti frumdrög að hönnun VA-arkitekta vegna endurbóta sundlaugar ásamt drögum að verk- og greiðsluáætlun. Áætlað er að framkvæmdir geti hafist í júní 2016 og að verktími verði til júní 2017.