Beint í efni

Sundlaug Garðabæjar - Tillögur að hönnun endurbóta og nýrra framkvæmda.

Málsnúmer 1601430

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

12. (1729). fundur

Bæjarstjóri gerið grein fyrir tillögum um endurnýjun á yfirborði og endurbætur á gervigrasvöllum á Ásgarðsvæðinu. Bæjarstjóri sagði frá tillögu að deiliskipulagi fyrir svæðið sem kynnt hefur verið í skipulagsnefnd en þar er m.a. gert ráð fyrir stækkun á gervigrasvöllum auk þess sem sýndur er byggingarreitur fyrir íþróttamannvikri austan við gamla íþróttahúsið. Bæjarstjóri sagði frá því að í samráði við Stjörnuna verður fundinn nýr staður fyrir byggingu fjölnota íþróttahús.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir drögum að hönnun endurbóta á sundlaug Garðabæjar. Fram kom hjá bæjarverkfræðingi að við hönnun hefur verið haft samráð við notendahóp sundlaugar.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

6. (1723). fundur

Bæjarverkfræðingur kynnti frumdrög að hönnun VA-arkitekta vegna endurbóta sundlaugar ásamt drögum að verk- og greiðsluáætlun. Áætlað er að framkvæmdir geti hafist í júní 2016 og að verktími verði til júní 2017.