17. (1734). fundur
17. (1734). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
10.05.2016
Kl. 08:00 - 09:10
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Umsóknir um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog - kynning umsækjanda.
Á fund bæjarráðs mættu Sigurbjörn Ingimundarson og Orri Árnason og gerðu grein fyrir umsókn óstofnaðs hlutafélags um lóð fyrir veitingastað við Arnarnesvog.
Fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið sátu bæjarfulltrúarnir, Sigríður Hulda Jónsdóttir, Jóna Sæmundsdóttir.
02
Kauptún 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna stækkunar og innri breytinga á verslunarhúsnæði að Kauptún 3.
03
Kauptún 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir eldsneytisstöð að Kauptúni 2. Byggingarleyfi verður útgefið með heimild til uppsetningar á 12 dæluslöngum á 3 dælueyjum.
05
Bæjarbraut 7-Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir viðbyggingu með hjólastólalyftu við skátaheimilið að Bæjarbraut 7.
06
Hliðsvegur 1 -Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna gistihúss að Hliðsvegi 1.
07
Hliðsvegur 1 -Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna stækkunar og breytinga á veitingastað að Hliðsvegi 1.
08
Strikið 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir nýbyggingu með 42 íbúðum fyrir eldri borgara við Strikið 1.
09
Hofslundur 19 -Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna endurnýjunar garðskála við Hofslund 19.
10
Afgreiðsla leikskólanefndar um beiðni um leiksólavist fyrir barn með lögheimili utan Garðabæjar.
Bæjarráð getur fallist á að verða við erindinu enda sé leikskólarými fyrir hendi og ekki hljótist af aukakostnaður.
Fylgiskjöl
11
Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti um breytingu á byggingareglugerð, dags. 03.05.16.
12
Bréf frá Alþingi um frumvarp til laga um breyt. á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð, 673. mál., dags. 04.05.2016.
13
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs o.fl. 670. mál, dags. 04.05.16.
14
Bréf framkvæmdastjóra öldrunar- og heimaþjónustu Garðabæjar varðandi drög að stefnu í málefnum eldri borgara, dags. 06.05.16.
Bæjarráð vísar stefnu í málefnum eldri borgara til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
15
Bréf Þórhildar Eddu Gunnarsdóttur og Arnórs Ólafssonar varðandi innritun í leikskóla, dags. 24.04.16.
Bæjarstjóri upplýsti að við innritun barna í leikskóla gildir almennt að laus rými losna á haustin þegar nýir árgangar hefja skólanám. Það getur því verið erfitt að tryggja innritun á öðrum tímum en unnið er að leiðum til skapa möguleika á meiri sveigjanleika við innritun barna á leikskóla.
Bæjarstjóri upplýsti að verið sé að vinna að úrlausn málsins til að koma á móts við sjónarmið og þarfir bréfritara.
Fylgiskjöl
16
Framkvæmdir við samgöngustíg yfir Arnarneshæð.
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir framkvæmdum við gerð lóðar- og hljóðgirðingar við stíg yfir Arnarneshæð. Í upphafi var framkvæmdin kynnt íbúum með kynningarbréfi, dags. 5. júní 2015 og í bréfinu voru íbúar hvattir til að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri við umhverfisstjóra.
Farið var yfir ábendingar og athugasemdir íbúa um hæð lóðargirðingar o.fl.
Bæjarverkfræðingur upplýsti að við framkvæmdina hefur vegna samráðs við íbúa verið samþykkt að hækka lóðargirðingu úr 1,6 m í 1,8 m og á einstaka stöðum í 2,0 m. Þá hefur verið tekin ákvörðun að hafa lóðargirðingu þéttklædda en upphaflega var gert ráð fyrir 2,5 cm bili milli borða. Við gerð hljóðgirðingar við Súlunes hefur verið samþykkt að hækka hana úr 1,5 m í 1,8 m og í öllum tilvikum er girðingin hærri en hæð manar var áður. Við Hegranes var mön endurhönnun þannig að almennt er hún hærri en eldri mön og til viðbótar kemur hljóðgirðing á móts við lóðir nr. 17 - 35.
Bæjarráð samþykkir að ljúka verkinu miðað við ofangreindar forsendur en að því loknu fari fram útreikningur á því hvort ástæða sé til að tvöfalda hljóðgirðingu við Súlunes og einangra til að til tryggja að hljóðvist verði jafngóð eða betri að framkvæmdum loknum.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins vegna tengsla við málefnið.
Fylgiskjöl
17
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir göngustíg sunnan Vífilsstaða.
Bæjarráð samþykkir að veita framkvæmdaleyfi fyrir stíg að Vífilsstaðavatni frá undirgöngum undir Reykjanesbraut meðfram Vatnsmýri, votlendinu við Vífilsstaðalæk/Hraunsholtslæk sunnan Vífilsstaða.
Stígurinn er sýndur á uppdrætti aðalskipulags Garðabæjar 2004 - 2016 en svæðið umhverfis stíginn hefur ekki verið deiliskipulagt.
Fylgiskjöl
18
Bréf húsfélagsins Löngumýrar 26 um útleigu á bifreiðageymslu, ódags.
Bæjarráð vísar bréfinu til frekari skoðunar á tækni- og umhverfissviði.
Bæjarstjóri vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins vegna tengsla við málefnið.