Beint í efni

Göngustígur að Vífilsstaðavatni

Málsnúmer 1601594

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

23. fundur

Göngustígur að Vífilsstaðavatni hefur verið í undirbúningi. Göngustígurinn verður sunnan Vífilsstaða, milli undirgangna undir Reykjanesbraut og Elliðavatnsvegar þar sem fyrirhuguð eru undirgöng síðar.
Framkvæmdin hefur verið boðin út og á fundi bæjarráðs 7. júní sl. var samþykkt að leita samninga við lægstbjóðanda í framkvæmdina.


Umhverfisnefnd fagnar lagningu þessarar fallegu og öruggu leiðar að friðlandi Vífilsstaðavatns.

Bæjarráð Garðabæjar

02

17. (1734). fundur

Bæjarráð samþykkir að veita framkvæmdaleyfi fyrir stíg að Vífilsstaðavatni frá undirgöngum undir Reykjanesbraut meðfram Vatnsmýri, votlendinu við Vífilsstaðalæk/Hraunsholtslæk sunnan Vífilsstaða.
Stígurinn er sýndur á uppdrætti aðalskipulags Garðabæjar 2004 - 2016 en svæðið umhverfis stíginn hefur ekki verið deiliskipulagt.

Fylgiskjöl