Stefna í málefnum eldri borgara í Garðabæ.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
8. (791). fundur
Sturla Þorsteinsson, mælti fyrir nýrri stefnu í málefnum eldri borgara. Sturla þakkaði öllum sem komið hafa að undirbúningi að gerð stefnunnar og sérstakar þakkir færði hann Ingibjörgu Valgeirsdóttur, framkvæmdastjóra öldrunar- og heimaþjónustu Garðabæjar.
Til máls tóku, María Grétarsdóttir, Baldur Ó Svavarsson og Gunnar Valur Gíslason.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða stefnu í málefnum eldri borgara
Bæjarráð Garðabæjar
02
17. (1734). fundur
Bæjarráð vísar stefnu í málefnum eldri borgara til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Fjölskylduráð Garðabæjar
03
4. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1503366 - stefna í málefnum eldri borgara. Formaður gerir grein fyrir framvindu vinnu við stefnumótun í málefnum eldri borgara. Málið rætt. Fulltrúar fjölskylduráðs í þeirri vinnu eru Harpa Hafberg og Sturla Þorsteinsson, formaður fjölskylduráðs.
Bæjarráð Garðabæjar
04
18. (1686). fundur
Lögð fram og kynnt drög að verkefnalýsingu vegna vinnu við endurskoðun á stefnu í málefnum eldri borgara.
Fylgiskjöl
Fjölskylduráð Garðabæjar
05
3. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1503366 Stefna í málefnum eldri borgara. Formaður ræðir samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar frá 16.4. 2015 um endurskoðun stefnu í málefnum eldri borgara, en bæjarstjórn samþykkti að vísa nánari útfærslu á tillögunni til bæjarráðs.