4. fundur
4. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
11.06.2015
Kl. 16:30 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sturla D Þorsteinsson - formaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Guðrún Hrefna Sverrisdóttir
Ritari
- Bergljót Sigurbjörnsdóttir
Dagskrá
01
Úttekt á skipulagi félagslegrar heimaþjónustu og stefnumótun
Tekið er fyrir mál nr. 1407209 úttekt á skipulagi félagslegrar heimaþjónustu og stefnumótun. Herdís Hjörleifsdóttir, félagsráðgjafi situr fundinn undir þessum lið. Málið er rætt. Fyrir fundinum liggja drög að endurskoðuðum reglum um heimaþjónustu ásamt úttekt á núverandi skipulagi og fyrirkomulagi þjónustunnar. Verkefnið nú er að skoða mögulegar útfærslur á framkvæmd félagslegrar heimaþjónustu og marka stefnu til framtíðar þar um. Fjölskylduráð felur fjölskyldursviði að vinna áfram að málinu.
02
Umsókn um NPA 2015
Tekið er fyrir mál nr. 1502394 - beiðni um endurskoðun á endurmati fjölskyldusviðs á stuðningsþörf í tengslum við endurnýjun NPA samnings. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
03
Umsókn um sérstakar húsaleigubætur
Tekið er fyrir mál nr. 1504057 málskot til fjölskylduráðs vegna synjunar á umsókn um sérstakar húsaleigubætur. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
04
Umsókn um sérstakar húsaleigubætur
Tekið er fyrir mál nr. 1504062 málskot til fjölskylduráðs vegna synjunar á umsókn um sérstakar húsaleigubætur. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
05
Stuðningsfjölskylda
Tekið er fyrir mál nr. 1503118 - úttekt vegna umsóknar um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda. Sjá nánar í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
06
Stefna í málefnum eldri borgara
Tekið er fyrir mál nr. 1503366 - stefna í málefnum eldri borgara. Formaður gerir grein fyrir framvindu vinnu við stefnumótun í málefnum eldri borgara. Málið rætt. Fulltrúar fjölskylduráðs í þeirri vinnu eru Harpa Hafberg og Sturla Þorsteinsson, formaður fjölskylduráðs.
07
Framkvæmdaráætlun í barnaverndarmálum
Tekið er fyrir mál nr. 1502318 -framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar. Farið er yfir drög að endurskoðaðri framkvæmdaáætlun. Áætlunin rædd og gerðar breytingar. Fjölskylduráð samþykkir að vísa drögum að endurskoðaðri framkvæmdaáætlun Garðabæjar á sviði barnaverndar kjörtímabilið 2014-2018 til bæjarráðs.
08
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk
Tekið er fyrir mál nr. 1302504 - búsetuúrræði fyrir fatlað fólk. Formaður gerir grein fyrir stöðu málsins. Verið er að vinna samningsskilmála vegna fyrirhugaðra viðræðna við aðila um samstarf um byggingu og rekstur sex íbúða fyrir fatlað fólk í Garðabæ. Á fundinum kemur fram tillaga um að haft verði samráð við fatlað fólk og aðstandendur þeirra varðandi aðbúnað og aðstöðu í fyrirhuguðum íbúðakjarna. Jafnframt leggur fjölskylduráð áherslu á að unnin verði áætlun um uppbyggingu búsetuúrræða fyrir fatlað fólk til lengri tíma.