Samgöngustígur vestan Hafnarfjarðarvegar yfir Arnarnes
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
26. fundur
Þann 20. september var samgöngustígur vestan Hafnarfjarðarvegar yfir Arnarnesið vígður formlega að viðstöddum nemendum Sjálandsskóla, fulltrúum Garðabæjar, fulltrúum Vegagerðarinnar og Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Jafnframt var kynnt rauð hjólalykilleið sem er samstarfsverkefni yfir höfuðborgarsvæðið.
Bæjarráð Garðabæjar
02
17. (1734). fundur
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir framkvæmdum við gerð lóðar- og hljóðgirðingar við stíg yfir Arnarneshæð. Í upphafi var framkvæmdin kynnt íbúum með kynningarbréfi, dags. 5. júní 2015 og í bréfinu voru íbúar hvattir til að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri við umhverfisstjóra.
Farið var yfir ábendingar og athugasemdir íbúa um hæð lóðargirðingar o.fl.
Bæjarverkfræðingur upplýsti að við framkvæmdina hefur vegna samráðs við íbúa verið samþykkt að hækka lóðargirðingu úr 1,6 m í 1,8 m og á einstaka stöðum í 2,0 m. Þá hefur verið tekin ákvörðun að hafa lóðargirðingu þéttklædda en upphaflega var gert ráð fyrir 2,5 cm bili milli borða. Við gerð hljóðgirðingar við Súlunes hefur verið samþykkt að hækka hana úr 1,5 m í 1,8 m og í öllum tilvikum er girðingin hærri en hæð manar var áður. Við Hegranes var mön endurhönnun þannig að almennt er hún hærri en eldri mön og til viðbótar kemur hljóðgirðing á móts við lóðir nr. 17 - 35.
Bæjarráð samþykkir að ljúka verkinu miðað við ofangreindar forsendur en að því loknu fari fram útreikningur á því hvort ástæða sé til að tvöfalda hljóðgirðingu við Súlunes og einangra til að til tryggja að hljóðvist verði jafngóð eða betri að framkvæmdum loknum.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins vegna tengsla við málefnið.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
28. (1696). fundur
Lögð fram tilboð sem bárust í göngu- og hjólreiðastig yfir Arnarneshæð.
Urð og grjót kr. 57.609.200
Loftorka Reykjavík ehf. kr. 80.759.200
Kostnaðaráætlun: kr. 81.734.700
Lagt fram minnisblað hönnuðar, dags. 20.07.15 þar sem fram kemur að borist hafi athugasemd frá lægstbjóðanda þess efnis að verð í malbik hafi verið gefið upp miðað við fermetra en ekki lengdarmetra eins og áskilið er í útboðsgögnum. Tilboðsgjafi óskar eftir leiðréttingu tilboðs hvað þetta varðar að öðrum kosti óski hann eftir að falla frá tilboðinu.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið hönnuðar og felst ekki á að einingarverðum sé breytt eftir á.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarverkfræðingi að leita samninga við lægstbjóðanda, Urð og grjót ehf. á grundvelli tilboðs fyrirtækisins. Óski tilboðsgjafi eftir að falla frá tilboði sínu af ofangreindri ástæðu er bæjarverkfræðingi falið að semja við Loftorku Reykjavík ehf. á grundvelli tilboðs fyrirtækisins.
Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
04
27. (1695). fundur
Bæjarráð samþykkir að veita framkvæmdaleyfi fyrir göngu- og hjólastíg yfir Arnarneshæð milli Hafnarfjarðarvegar og lóða við Hegranes og Súlunes. Stígurinn er í samræmi við gildandi deiliskipulag Arnarness sem samþykkt var í bæjarstjórn 3. apríl 2014 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda 8. maí 2014.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
05
25. (1693). fundur
Lagðar fram athugasemdir frá Jónasi Fr. Jónssyni, Hegranesi 31 og Árna Gíslasyni, Súlunesi 2, varðandi lagningu hjóla- og göngustígs yfir Arnarneshæð. Í athugasemdunum kemur fram það sjónarmið að stígurinn muni valda íbúum ónæði og í því sambandi bent aðeins er gert ráð fyrir að lóðargirðing við stiginn verði 160 cm.
Lagt er fram minnisblað Andra Árnasonar, hrl. þar sem fjallað er um álitaefnið. Í niðurstöðu þess kemur fram að með hliðsjón af fyrirhugðum mótvægisaðgerðum verði að telja stígurinn feli í óverulega röskun fyrir eigendur fasteigna á svæðinu og ekki umfram sem búast má við miðað við staðsetningu viðkomandi eigna.
Bæjarráð áréttar að fyrirhugaður stígur er í samræmi við deiliskipulag og með lagningu hans og breytingu á hljóðmön er verið að bæta hljóðvist og tryggja öryggi íbúa og annarra vegfarenda með því að létta umferð um húsgötur.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara ofngreindum athugasemdum.
Halldór Jörgensson, vakti athygli á nauðsyn þess að bæta merkingar á stígum og aðgreina umferð hjólandi og gangandi til að tryggja öryggi og koma í veg fyrir slys.