Beint í efni

25. (1693). fundur

30.06.2015
Bæjarráð Garðabæjar

25. (1693). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

30.06.2015

Kl. 08:00 - 08:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varamaður

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1410266

01

Opnun tilboða í uppsteypu Urriðaholtsskóla, dags. 19.06.2015.

Eftirfarandi tilboð bárust í uppsteypu Urriðaholtsskóla.

Spennt ehf. kr. 396.129.575

Þ.G.-verktakar ehf. kr. 418.978.830

Ístak, Ísland hf. kr. 428.667.617

Ris byggingarverktakar kr. 328.627.845

L.N.S. Saga ehf. kr. 414.536.016

Alefli ehf. kr. 419.115.918

Kostnaðaráætlun hönnuða: kr. 417.304.083

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarverkfræðingi að leita samninga við lægstbjóðanda, Ris byggingarverktaka á grundvelli tilboðsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1502378

02

Athugasemdir við lagningu samgöngustígs vestan Hafnarfjarðarvegar yfir Arnarnes, dags. 12.06.2015.

Lagðar fram athugasemdir frá Jónasi Fr. Jónssyni, Hegranesi 31 og Árna Gíslasyni, Súlunesi 2, varðandi lagningu hjóla- og göngustígs yfir Arnarneshæð. Í athugasemdunum kemur fram það sjónarmið að stígurinn muni valda íbúum ónæði og í því sambandi bent aðeins er gert ráð fyrir að lóðargirðing við stiginn verði 160 cm.

Lagt er fram minnisblað Andra Árnasonar, hrl. þar sem fjallað er um álitaefnið. Í niðurstöðu þess kemur fram að með hliðsjón af fyrirhugðum mótvægisaðgerðum verði að telja stígurinn feli í óverulega röskun fyrir eigendur fasteigna á svæðinu og ekki umfram sem búast má við miðað við staðsetningu viðkomandi eigna.

Bæjarráð áréttar að fyrirhugaður stígur er í samræmi við deiliskipulag og með lagningu hans og breytingu á hljóðmön er verið að bæta hljóðvist og tryggja öryggi íbúa og annarra vegfarenda með því að létta umferð um húsgötur.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara ofngreindum athugasemdum.

Halldór Jörgensson, vakti athygli á nauðsyn þess að bæta merkingar á stígum og aðgreina umferð hjólandi og gangandi til að tryggja öryggi og koma í veg fyrir slys.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1501297

03

Fundargerð SHS, dags. 19.06.2015.

Málsnúmer 1505179

04

Bréf skólastjórnenda um kjaramál, dags. 25.06.2015.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1506318

05

Skýrsla stýrihóps um athugun á framtíðarflugvallasvæði Reykjavíkurflugvallar, dags. 25.06.2015.

Málsnúmer 1506299

06

Stefna í almannavarna- og öryggismálum, dags. 24.06.2015.

Málsnúmer 1506161

07

Tillaga um skipun afmælisnefndar í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar á árinu 2016, dags. 18.06.2015.