Niðurskurður á sviði mennta- og frístundamála við börn
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
2. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1602105 bréf umboðsmanns barna dags. 4. febrúar sl. varðandi niðurskurð á sviði mennta- og frístundamála barna sem bæjarráð vísar til kynningar í fjölskylduráði. Lagt fram og rætt.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
02
19. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
16. fundur
Bréf Umboðsmanns barna lagt fram og rætt. Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 er ekki gert ráð fyrir breytingum á rekstri leikskólanna. Þróunarsjóður verður áfram nýttur til að styðja við starf skólanna.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
17. fundur
Til kynningar er bréf frá umboðsmanni barna um að gæta hagsmuna barna í öllum hagræðingar- eða niðurskurðaráætlunum sveitarfélaga.
Til kynningar var bréf frá umboðsmanni barna um að gæta hagsmuna barna í öllum hagræðingar- eða niðurskurðaráætlunum sveitarfélaga. Engar slíkar áætlanir eru uppi í Garðabæ.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
05
5. (1722). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í viðeigandi fastanefndum bæjarstjórnar.