5. (1722). fundur
5. (1722). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
09.02.2016
Kl. 08:00 - 08:50
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Drög að lýsingu vegna samkeppni fyrir Lyngássvæði og Hafnarfjarðarveg.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu dómnefndar um útgáfu keppnislýsingar vegna samkeppni fyrir Lyngássvæðið og Hafnarfjarðarveg með áorðnum breytingum sem kynntar voru á fundinum.
Bæjarráð samþykkir að tillagan verði send fulltrúum í skipulagsnefnd.
02
Bréf AFM og ÍJ varðandi starfsleyfi fyrir sjálfstætt starfandi sérskóla, dags. 01.02.15.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skólanefndar og til nánari skoðunar fræðslu- og menningarsviðs.
03
Bréf Golfklúbbsins Setbergs um niðurfellingu fasteignagjalda af golfskála, dags. 03.02.16.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Setbergs styrk að fjárhæð kr. 322.430 til greiðslu fasteignagjalda fyrir árið 2016.
Fylgiskjöl
04
Bréf Bessastaðasóknar um niðurfellingu fasteignagjalda 2016, dags. 03.02.16.
Bæjarráð samþykkir að veita Bessastaðasókn styrk að fjárhæð kr. 219.570 til greiðslu fasteignagjalda fyrir árið 2016.
Fylgiskjöl
05
Starfsáætlanir sviða fyrir árið 2016
Lagðar fram starfsáætlanir sviða fyrir árið 2016.
Fylgiskjöl
06
Erindi SP um að starfrækja veislueldhús í Holtsbúð, dags. 04.02.16.
Bæjarráð vísar málinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
07
Bréf Umboðsmanns barna vegna niðurskurðar á sviði mennta- og frístundamála við börn, dags. 04.02.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í viðeigandi fastanefndum bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
08
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar knattspyrnudeildar Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi fyrir samkomuhald í Ásgarði.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verið veitt.
09
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi reglur um auglýsingar utan þéttbýlis, dags. 22.09.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.
Fylgiskjöl
10
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um verlsun með áfengi og tóbak o.fl. 13. mál, dags. 29.01.16.
11