Beint í efni

3. fundur

13.04.2016
Fjölskylduráð Garðabæjar

3. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

13.04.2016

Kl. 16:30 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sturla D Þorsteinsson - formaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Harpa Guðný Hafberg - aðalmaður

Starfsmenn

  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Anna Karin Juliussen - félagsráðgjafi

Ritari

  • Bergljót Sigurbjörnsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1601294

01

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr. 1601294 málskot í tengslum við synjun fjölskyldusviðs á umsókn um fjárhagsaðstoð. Nánar bókað í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1602313

02

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr. 1602313 málskot í tengslum við synjun fjölskyldusviðs á umsókn um fjárhagsaðstoð. Nánar bókað í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1602405

03

Umsókn um sérstakar húsaleigubætur

Tekið er fyrir mál nr. 1602405 málskot í tengslum við umsókn um sérstakar húsaleigubætur. Nánar bókað í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1602404

04

Umsókn um sérstakar húsaleigubætur

Tekið er fyrir mál nr. 1602404 málskot í tengslum við umsókn um sérstakar húsaleigubætur. Nánar bókað í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1603178

05

Geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga

Tekið er fyrir mál nr. 1603178 erindi frá bæjarráði Garðabæjar. Bæjarráð vísaði til umfjöllunar fjölskylduráðs bréfi skólastjórnenda í Garðabæ varðandi áskorun til stjórnvalda um bætt úrræði í geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga. Fjölskylduráð ræðir bréfið og tekur undir áhyggjur skólastjórnenda í Garðabæ af ófullnægjandi aðgangi barna og unglinga að nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju sinni með þetta framtak skólastjórnenda í Garðabæ.

Málsnúmer 1510223

06

Íbúakönnun - þjónustukönnun 2015

Tekið er fyrir mál nr. 1510223 Íbúakönnun-þjónustukönnun 2015. Fjölskylduráð fjallar um könnunina. Fram kemur að íbúar 19 sveitarfélaga á landinu voru spurðir um afstöðu þeirra til ólíkra þátta í þjónustu síns sveitarfélags. Garðabær lendir í fyrsta eða öðru sæti í níu spurningum af þrettán í könnuninni. Garðabær fær hæstu einkunn allra sveitarfélaga þegar íbúar eru spurðir hversu ánægðir þeir eru með sveitarfélagið sitt sem stað til að búa á. Helstu niðurstöður könnunarinnar hafa verið birtar á heimasíðu Garðabæjar.