15. fundur
15. fundur
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
21.09.2016
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristinn Guðlaugsson - formaður
- Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
- Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
- Kristín Harðardóttir - aðalmaður
- Þóroddur Bjarnason - aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
Ritari
- Laufey Ólafsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1605075
01
Skólastarf tónlistarskóla 2016-2017
Tónlistarskólinn var settur á sal skólans fimmtudaginn 25. ágúst sl. Skólastjóri fór yfir fjölda nemenda sem verða um 525 og kennarar við skólann verða 48. 4 kennarar eru í leyfi að hluta í vetur og hefur verið ráðið í þeirra stöður. Skólinn er með 6 starfsstöðvar.
Málsnúmer 1609192
02
Tilkynning frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu um samning um rekstur Listframhaldsskóla, dags. 19.08.16.
Málið kynnt og lagt fram.
Málsnúmer 1609191
03
Undirbúningur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017
Skólastjóri lagði ríka áherslu á að halda áfram að bæta og endurnýja hljóðfærakost skólans t.d. má nefna að komið er að endurnýjun flygils á Álftanesi.
Með stækkandi byggð má gera ráð fyrir aukinni aðsókn nemenda í skólanum og huga þarf að auknu hlutfalli stöðugilda.
Málsnúmer 1609244
04
Tilkynning frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um reglur vegna framlaga til stuðnings við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda, dags. 15.09.16.
Málið kynnt og lagt fram.