Beint í efni

Fjárhagsáætlun 2017

Málsnúmer 1609191

Ferill máls

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

01

16. fundur

Farið var yfir helstu liði fjárhagsáætlunar tónlistarskólans fyrir næsta ár en fyrri umræða fór fram í bæjarstjórn 3. nóvember. Skólastjóri ítrekaði mikilvægi þess að halda áfram endurnýjun á búnaði skólans. Huga þarf að bættri samspils- og hópkennsluaðstöðu fyrir tónlistarskólann bæði á Álftanesi og í Kirkjulundi. Í því sambandi þarf að huga að viðbyggingu við húsnæði skólans við Kirkjulund og að gera ráð fyrir aðstöðu fyrir tónlistarskólann þegar byggt verður við húsnæði grunnskólans á Álftanesi.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

02

15. fundur

Skólastjóri lagði ríka áherslu á að halda áfram að bæta og endurnýja hljóðfærakost skólans t.d. má nefna að komið er að endurnýjun flygils á Álftanesi.

Með stækkandi byggð má gera ráð fyrir aukinni aðsókn nemenda í skólanum og huga þarf að auknu hlutfalli stöðugilda.