Beint í efni

16. (1782). fundur

02.05.2017
Bæjarráð Garðabæjar

16. (1782). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

02.05.2017

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - varamaður
  • Gísli Geir Jónsson - varamaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1704108

01

Bakkaflöt 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Benedikt Einarssyni, kt. 221081-3669 leyfi fyrir viðbyggingu og niðurrifi á bílskúrs við núverandi hús að Bakkaflöt 3.

Málsnúmer 1704162

02

Breiðakur 6-8 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Mánalind ehf., kt. 520515-1000 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 8 íbúðum að Breiðakri 6-8.

Málsnúmer 1703041

03

Hraungata 20 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ragnari Þórðarsyni, kt. 150264-5109 leyfi til að byggja einbýlishús að Hraungötu 20.

Málsnúmer 1611188

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu á umsókn um byggingarleyfi að Sunnuflöt 22

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Sunnuflöt 22. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 1608251

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu á umsókn um byggingarleyfi að Súlunes 10.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Súlunes 10. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.

Málsnúmer 1703099

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar um erindi lóðarhafa í Grænagarði um fjölgun byggingarreita.

Lögð fram.

Málsnúmer 1302243

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að nýju aðalskipulagi Garðabæjar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en tillagan hefur fengið meðferð samkvæmt 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

Málsnúmer 1703380

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi aðalskipulag Hafnarfjarðar, breyting vegna þjóðlendu í Leiðarenda

Lögð fram.

Málsnúmer 1703290

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Elliðaárdalur - Nýr hjólastígur

Lögð fram.

Málsnúmer 1704237

10

Bréf Alþingis um tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2017-2021, 434. mál., dags. 28.04.17.

Málsnúmer 1704240

11

Bréf Alþingis um frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði, 435. mál., dags. 28.04.17.

Málsnúmer 1704236

12

Bréf Alþingis um frumvarp til laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, 436. mál., dags. 28.04.17.

Málsnúmer 1704224

13

Bréf tómstundafulltrúa um laun og vinnutíma í vinnuskóla sumarið 2017, dags. 26.04.17.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu tómstundafulltrúa um laun og vinnutíma í vinnuskóla sumarið 2017.

Unglingar 14 ára (f.2003) kr. 500 pr.klst.

Unglingar 15 ára (f.2002) kr. 565 pr.klst.

Unglingar 16 ára (f.2001) kr. 750 pr.klst.

Vinnutími 15 og 16 ára unglinga verður 29,5 klst á viku.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1610112

14

Minnisblað Gallup um skipun rýnihópa í tengslum við þjónustukönnun, dags. 04.04.17.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum í minnisblaði Gallup um skipun umræðuhópa til að rýna nánar niðurstöður í ákveðnum þáttum könnunar á þjónustu Garðabæjar.

Bæjarráð samþykkir tillögu um skipun fjögurra rýnihópa til að taka eftirfarandi málefni til umfjöllunar.

Þjónusta við barnafjölskyldur.

Þjónusta við eldri borgara.

Þjónusta við fatlað fólk.

Úrlausn erinda hjá öllum sviðum á bæjarskrifstofum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1701250

15

Greinargerð Sorpu bs. um úrræði við söfnun plasts á höfuðborgarsvæðinu, dags. í mars 2017.

Bæjarráð vísar greinargerðinni til umfjöllunar í umhverfisnefnd og til frekari úrvinnslu hjá bæjarstjóra og tækni- og umhverfissviði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1704241

16

Tillaga um samkeppni um rammaskipulag fyrir Hnoðraholt og Vífilsstaðaland

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611189

17

Tillaga um könnun og greiningu á störfum og starfsumhverfi bæjarfulltrúa.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að láta fara fram könnun og greiningu á störfum og starfsumhverfi bæjarfulltrúa.

Fylgiskjöl