Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu á umsókn um byggingarleyfi að Sunnuflöt 22
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
16. (1782). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Sunnuflöt 22. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
5. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir hafa verið gerðar tillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
5. (807). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um viðbyggingu við núverandi hús að Sunnuflöt 22, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
04
7. (1773). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um viðbyggingu við núverandi hús að Sunnuflöt 22, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
2. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Flata sem gerir ráð fyrir lítilli viðbyggingu,anddyri, á framlóð utan byggingreits.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata skv 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar sbr. 44.gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Sunnuflöt 17, 19, 20, 21 og 24.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
19. fundur
Lögð fram fyrirspurn um breytingar á einbýlishúsinu að Sunnuflöt 22 sem kalla á deiliskipulagsbreytingar. Tillagan gerir ráð fyrir viðbyggingu við bílskúr sem lengir húshlið umfram 7,5 m hámark bílageymslu og bíslag við anddyri nær út fyrir byggingareit. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.