5. (807). fundur
5. (807). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
02.03.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 16. febrúar 2017 er lögð fram.[line]
Dagskrá
Málsnúmer 1702031F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 21/2 ´17.
Steinþór Einarsson, ræddi 5. tl., bréf íbúa að Hrísmóum 13 um skipulag á Garðatorgi og 14. tl., tillögu að keppnislýsingu vegna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag miðsvæðis Álftaness.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 5. tl., bréf íbúa að Hrísmóum 13 um skipulag á Garðatorgi og 14. tl., tillögu að keppnislýsingu vegna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag miðsvæðis Álftaness.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., bréf íbúa að Hrísmóum 13 um skipulag á Garðatorgi.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 5. tl., bréf íbúa að Hrísmóum 13 um skipulag á Garðatorgi.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 14. tl., tillögu að keppnislýsingu vegna framkvæmdasamkeppni um deiliskipulag miðsvæðis Álftaness.
Fundargerðin sem er 24 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1702039F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 28/2 ´17.
María Grétarsdóttir, ræddi 8. tl., starfsáætlanir sviða og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Við yfirferð bæjarritara á starfsáætlun fjármála og stjórnsýslusviðs í bæjarráði s.l. þriðjudag kom fram að stefnt sé að því að opna bókhald bæjarins fyrir árslok 2017. FÓLKIÐ- í bænum hefur frá árinu 2012 óskað eftir að bærinn myndi ráðast í þetta verkefni og gegnsæi í meðferð opinbers fjár þannig aukið. Við fögnum því að nú sé farið að hilla undir að þetta verkefni líti dagsins ljós“.
Almar Guðmundsson, ræddi 7. tl., tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðssvæðis.
Fundargerðin sem 13. tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1702033F
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 23/2 ´17.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl. og 2. tl., umsókn um að gerast stuðningsfjölskylda og 5. og 6. tl., tl., athugasemdir Barnaverndarstofu við vinnslu mála.
Steinþór Einarsson, ræddi 4. tl., búsetuúrræði fyrir fatlað fólk.
Sturla Þorsteinsson, ræddi sama mál.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1702024F
04
Fundargerð skipulagsnefndar frá 16/2 ´17.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1702017F
05
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 15/2 ´17.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 4. og 7. bekk á árinu 2016, 2. tl., skóladagatal 2017-2018, 3. tl., útboð skólamálsverða í grunnskólum.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 4. og 7. bekk á árinu 2016. Jóna notaði tækifærið til að óskaði nýkrýndum bikarmeisturum Stjörnunnar í meistaraflokki kvenna til hamingju með glæsilegan bikarsigur um síðustu helgi.
Steinþór Einarsson, ræddi 3. tl., útboð skólamálsverða í grunnskólum.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701412
06
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 27/2 ´17.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi frumvarp til laga um verslun með áfengi, tóbak ofl. sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Guðrún vakti athygli á samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar að mæla gegn samþykkt frumvarpsins og ræddi þann möguleika að taka málið á dagskrá í bæjarstjórn Garðabæjar.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701401
07
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 24/2 ´17.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl., ársreikning 2016, 3. tl., úrskurður ÚUA um starfsleyfi til urðunar, 5. tl. gas- og jarðgerðarstöð og 7. tl. nýja endurvinnslustöð.
Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi stöðu mála varðandi nýjan urðunarstað.
Sturla Þorsteinsson, ræddi sama mál.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701135
08
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 20/2 ´17.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., reglur um hvað má fara í vagninn, 5. tl., áhrif hraðastefnu Reykjavíkurborgar á leiðakerfi Strætó bs., 6. tl. farþegatalningar og 9. tl., kæru vegna útboðs á kaupum á vögnum.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 3. tl., reglur um hvað má fara í vagninn.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls að nýju um 3. tl.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1701289
09
Fundargerð stjórnar SHS frá 27/2 ´17.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1603319
10
Samþykkt um breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs.
Lögð fram eftirfarandi tillaga um afgreiðslu.
„Á fundi bæjarráðs Garðabæjar sem haldinn var 15. nóvember 2016 var samþykkt með vísan til 3. ml. 3.. mgr. 41. gr. skipulagslaga að senda samþykkta tillögu um breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs til Skipulagstofnunar til meðferðar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti samkvæmt auglýsingu.
Með bréfi Skipulagsstofnunar, dags. 20. janúar 2017 eru gerðar athugasemdir við tillöguna og er bréf stofnunarinnar tekið til umræðu samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
Í tilefni af athugasemdum Skipulagsstofnunar hefur verið lagður fram nýr uppdráttur vegna tillögunnar. Á uppdrættinum er yfirlit yfir breytingar þar sem nánari grein er gerð fyrir eftirfarandi atriðum.
Gildistöku upphaflegs deiliskipulags fyrir svæðið og síðari breytingum.
Skilmálum fyrir byggingarreit sem er stækkaður.
Færslu lóðarmarka.
Fjölgun bílastæða.
Niðurrifi bygginga.
Lýsingu vallarsvæðis, færslu á möstrum og skilmálum vegna lýsingar.
Færslu og breytingu á legu göngustígs.
Bæjarstjórn telur að með uppdrættinum hafi öll atriði sem gáfu tilefni til athugasemda í ofangreindu bréfi Skipulagsstofnunar verið upplýst og leiðrétt.
Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa í B- deild Stjórnartíðinda breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs á grundvelli ofangreinds uppdráttar, sbr. niðurlag 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
Niðurstaða bæjarstjórnar skal auglýst, sbr. niðurlag 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga og í auglýsingu skal vekja athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga, sbr. lög um úrskurðarnefnd umhverfis og auðlindamála nr. 130/2011.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu um afgreiðslu málsins. María Grétarsdóttir, situr hjá.
Málsnúmer 1611189
11
Samþykkt um laun bæjarfulltrúa og kjörinna fulltrúa í nefndum bæjarstjórnar.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls.
Steinþór Einarsson, tók til máls.
María Grétarsdóttir, tók til máls.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls að nýju.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.
Sigurður Guðmundsson, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (GVG,ÁHJ,SHJ,SG,SÞ,JS,AG,GEH) samþykkt um laun fyrir störf í bæjarstjórn nefndum og ráðum á vegum bæjarstjórnar með gildistíma frá 1. nóvember 2016. Í samþykktinni kemur fram að viðmiðunarfjárhæð launa verður kr. 831.470. Þrír sitja hjá (HJ,MG,SE).