Beint í efni

Samþykkt um breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs.

Málsnúmer 1603319

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (807). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga um afgreiðslu.

„Á fundi bæjarráðs Garðabæjar sem haldinn var 15. nóvember 2016 var samþykkt með vísan til 3. ml. 3.. mgr. 41. gr. skipulagslaga að senda samþykkta tillögu um breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs til Skipulagstofnunar til meðferðar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti samkvæmt auglýsingu.

Með bréfi Skipulagsstofnunar, dags. 20. janúar 2017 eru gerðar athugasemdir við tillöguna og er bréf stofnunarinnar tekið til umræðu samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.

Í tilefni af athugasemdum Skipulagsstofnunar hefur verið lagður fram nýr uppdráttur vegna tillögunnar. Á uppdrættinum er yfirlit yfir breytingar þar sem nánari grein er gerð fyrir eftirfarandi atriðum.

Gildistöku upphaflegs deiliskipulags fyrir svæðið og síðari breytingum.
Skilmálum fyrir byggingarreit sem er stækkaður.
Færslu lóðarmarka.
Fjölgun bílastæða.
Niðurrifi bygginga.
Lýsingu vallarsvæðis, færslu á möstrum og skilmálum vegna lýsingar.
Færslu og breytingu á legu göngustígs.

Bæjarstjórn telur að með uppdrættinum hafi öll atriði sem gáfu tilefni til athugasemda í ofangreindu bréfi Skipulagsstofnunar verið upplýst og leiðrétt.

Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa í B- deild Stjórnartíðinda breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs á grundvelli ofangreinds uppdráttar, sbr. niðurlag 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.

Niðurstaða bæjarstjórnar skal auglýst, sbr. niðurlag 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga og í auglýsingu skal vekja athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga, sbr. lög um úrskurðarnefnd umhverfis og auðlindamála nr. 130/2011.

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu um afgreiðslu málsins. María Grétarsdóttir, situr hjá.

Bæjarráð Garðabæjar

02

8. (1774). fundur

Í tilefni af athugasemdum Skipulagsstofnunar, sbr. bréf 20. janúar sl. er lagður fram nýr uppdráttur vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs. Á uppdrættinum er yfirlit yfir breytingar þar sem nánari grein er gerð fyrir eftirfarandi atriðum.

Gildistöku upphaflegs deiliskipulags fyrir svæðið og síðari breytingum.
Skilmálum fyrir byggingarreit sem er stækkaður.
Færslu lóðarmarka.
Fjölgun bílastæða.
Niðurrifi bygginga.
Lýsingu vallarsvæðis, færslu á möstrum og skilmálum vegna lýsingar.
Færslu og breytingu á legu göngustígs.

Bæjarráð telur að með uppdrættinum hafi öll atriði sem gáfu tilefni til athugasemda í ofangreindu bréfi Skipulagsstofnunar verið upplýst og leiðrétt.

Bæjarstjóri greindi frá tveimur fundum með íbúum Stekkjarflatar þar sem m.a. voru kynntar nýjar forsendur í hönnun á lýsingu með það að markmiði að draga sem mest úr ljósmengun og umhverfisáhrifum ljóskastara. Jafnframt kom fram krafa um að settar verði starfsreglur og skilmálar um notkun svæðisins.

Bæjarráð vísar tillögu að breytingu að deiliskipulagi fyrir Ásgarð til afgreiðslu bæjarstjórnar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð samþykkir að fela íþrótta- og tómstundaráði að vinna að gerð reglna um íþróttasvæðið við Ásgarð þar sem m.a. verða skilmálar um notkun og takmarkanir vegna lýsingar og hávaða.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

7. (1773). fundur

Lögð fram.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

2. fundur

Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Ásgarðs. Athugasemdir voru gerðar við framsetningu tillögunnar og hafa þær nú verið leiðréttar. Skipualgsstjóri gerði grein fyrir fundum tækni og umhverfissviðs, formanns skipulagsnefndar og bæjarstjóra með íbúum við Stekkjarflöt en í ljós hefur komið að kynning tillögnnar fór fram hjá íbúum. Leitað hefur verið leiða til þess að draga úr áhrifum ljóskastara og færslu göngustígs á aðliggjandi byggð.

Bæjarráð Garðabæjar

05

5. (1771). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

06

44. (1761). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

16. fundur


Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ásgarðs sem gerir ráð fyrir tilfærslum æfingavalla, ljósmastra, stækkun lóðar íþróttasvæðis og breytingu á legu göngustígs meðfram húsum við Stekkjarflöt. Tillagan var í auglýsingu frá 7.september til 19.október 2016.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í bæjarstjórn 19.maí 2016 sem deiliskipulagsbreyting í samræmi við 3.mgr.41.gr. Skipulagslaga nr.123/2016.

Bæjarráð Garðabæjar

08

26. (1743). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga,vegna stækkunar byggingarreits og æfingavalla.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs að lokinni forkynningu.
Helstu breytingar eru:
-nýr byggingarreitur þar sem gervigrasvöllur er við hlið battavalla
-nýr byggingarreitur við norðausturenda stúku
-ljósamöstur við æfingavöll næst Flataskóla
-stækkun æfingavalla næst Stekkjarflöt, tilfærsla ljósamastra að Stekkjarflöt
Forkynning fór fram dagana 26.maí til 14.júní. Haldinn var kynningarfundur í Flataskóla þann 31.maí og var hann vel sóttur.
Þrjú erindi með ábendingum hafa borist og er þeim vísað til skoðunar hjá deiliskipulagshöfundi.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 41.gr. og 1.mgr.43.gr Skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

10

8. (791). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs sbr. 1. mgr. 43 gr. vegna stækkunar byggingarreits o.fl. Fallið skal frá gerð lýsingar.

Bæjarráð Garðabæjar

11

15. (1732). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs sbr. 1. mgr. 43 gr. Fallið skal frá gerð lýsingar.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs. Helstu breytingar eru:
-nýr byggingarreitur þar sem gervigrasvöllur er við hlið battavalla
-nýr byggingarreitur við norðausturenda stúku
-ljósamöstur við æfingavöll næst Flataskóla
-stækkun æfingavalla næst Stekkjarflöt, tilfærsla ljósamastra að Stekkjarflöt

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr. Skipulagslaga. Halda skal kynningarfund á forkynningartíma.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

7. fundur

Lögð fram tillga að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreitum við íþróttahús og sundlaug.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Fylgiskjöl