5. (1771). fundur
5. (1771). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
07.02.2017
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Hagaflöt 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Stellu Ólafsdóttur, kt. 240780-5269 leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Hagaflöt 18.
02
Blikanes 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sveini Ragnarssyni, kt. 280662-4889 leyfi fyrir innri breytingum á núverandi einbýlishúsi að Blikanesi 10.
03
Hraungata 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita A7 ehf., kt. 500614-0130 leyfi til að byggja fjölbýlishús með fjórum íbúðum að Hraungötu 9.
04
Hraungata 11 -Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita A7 ehf., kt. 500614-0130 leyfi til að byggja fjölbýlishús með fjórum íbúðum að Hraungötu 11.
05
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir gististarfsemi
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
06
Bréf Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag Ásgarðs, dags. 20.01.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
07
Bréf Golfklúbbsins Setbergs um lækkun fasteignagjalda, dags. 03.02.17.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbi Setbergs styrk að fjárhæð kr. 368.625 til greiðslu fasteignagjalda 2017 af golfskála.
Fylgiskjöl
08
Bréf Jóns Ragnars Daðasonar um lækkun fasteignagjalda af íbúðarhúsinu að Breiðabólsstöðum, dags. 23.01.17.
Bæjarráð samþykkir með vísan til heimildar í 19. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012 að fella niður álagðan fasteignaskatt árið 2017 að fjárhæð kr. 98.900.
Fylgiskjöl
09
Bréf Bessastaðsóknar varðandi lækkun fasteignagjalda, dags. 27.01.17.
Bæjarráð samþykkir að veita Bessastaðasókn styrk að fjárhæð kr. 226.975 til greiðslu fateignagjalda 2017 af safnaðarheimili að Brekkuskógum 1.
Fylgiskjöl
10
Bréf deildarstjóra í grunnskólum varðandi kjaramál, dags. 02.02.17.
Í bréfinu er farið fram á endurskoðun á launakjörum deildarstjóra við grunnskóla sem í sumum tilvikum geta verið lægri en laun umsjónarkennara.
Bæjarráð bendir á að Garðabær hefur falið stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga umboð til að annast gerð kjarasamnings við grunnskólakennara.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
11
Bréf kennsluráðgjafa í grunnskólum varðandi kjaramál, dags. 20.01.17.
Í bréfinu er farið fram endurskoðun launa kennsluráðgjafa í grunnskólum með tilliti til aukins álags, umfangs og ábyrgð í starfi.
Bæjarráð bendir á að Garðabær hefur falið stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga umboð til að annast gerð kjarasamnings við kennsluráðgjafa í grunnskólum.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
12
Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi óleyfisbúsetu í atvinnuhúsnæði í Garðabæ, dags. 30.01.17
Bæjarráð samþykkir að tækni- og umhverfissvið taki þátt í verkefni Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins við að skrá og hafa eftirlit með óleyfisbúsetu í atvinnuhúsnæði í Garðabæ.
Fylgiskjöl
13
Framkvæmdaáætlun samkvæmt fjárhagsáætlun 2017.
Bæjarverkfræðingur lagði fram og gerði grein fyrir tímasettri framkvæmdaáætlun ársins 2017.