Beint í efni

8. (1774). fundur

28.02.2017
Bæjarráð Garðabæjar

8. (1774). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

28.02.2017

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1609345

01

Holtsbúð 89 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Arnaldi Loftssyni, kt. 210670-5139, leyfi fyrir innri breytingum á núverandi húsi að Holtsbúð 89.

Málsnúmer 1612224

02

Vesturhraun 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita GJ-bílahúsi, kt. 700109-0380 leyfi til að reisa viðbyggingu við núverandi hús á lóðinni að Vesturhrauni 5.

Málsnúmer 1605449

03

Þernunes 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnari Bachmann, kt. 280664-2789, leyfi fyrir innri breytingum á núverandi húsi að Þernunesi 1.

Málsnúmer 1609339

04

Drög að söluskilmálum lóða í 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Bæjarráð samþykkir söluskilmála byggingarréttar norðurhluta III og háholts Í Urriðaholti.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1702358

05

Drög að samningi uppbyggingu háholts samkvæmt deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við Urriðaholt ehf. um uppbyggingu háholts samkvæmt deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Málsnúmer 1702333

06

Bréf Hafnarfjarðar um breytingu á aðalskipulagi vegna marka vatnsverndarsvæðis, dags. 15.02.17.

Málsnúmer 1603319

07

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðssvæðis.

Í tilefni af athugasemdum Skipulagsstofnunar, sbr. bréf 20. janúar sl. er lagður fram nýr uppdráttur vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs. Á uppdrættinum er yfirlit yfir breytingar þar sem nánari grein er gerð fyrir eftirfarandi atriðum.

Gildistöku upphaflegs deiliskipulags fyrir svæðið og síðari breytingum.

Skilmálum fyrir byggingarreit sem er stækkaður.

Færslu lóðarmarka.

Fjölgun bílastæða.

Niðurrifi bygginga.

Lýsingu vallarsvæðis, færslu á möstrum og skilmálum vegna lýsingar.

Færslu og breytingu á legu göngustígs.

Bæjarráð telur að með uppdrættinum hafi öll atriði sem gáfu tilefni til athugasemda í ofangreindu bréfi Skipulagsstofnunar verið upplýst og leiðrétt.

Bæjarstjóri greindi frá tveimur fundum með íbúum Stekkjarflatar þar sem m.a. voru kynntar nýjar forsendur í hönnun á lýsingu með það að markmiði að draga sem mest úr ljósmengun og umhverfisáhrifum ljóskastara. Jafnframt kom fram krafa um að settar verði starfsreglur og skilmálar um notkun svæðisins.

Bæjarráð vísar tillögu að breytingu að deiliskipulagi fyrir Ásgarð til afgreiðslu bæjarstjórnar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð samþykkir að fela íþrótta- og tómstundaráði að vinna að gerð reglna um íþróttasvæðið við Ásgarð þar sem m.a. verða skilmálar um notkun og takmarkanir vegna lýsingar og hávaða.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1702318

09

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til vínveitinga í íþróttamiðstöðinni Ásgarði.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 1702357

10

Bréf UMF Stjörnunnar um styrk til greiðslu fasteignagjalda 2017, dags. 22.02.17.

Bæjarráð samþykkir að veita UMF-Stjörnunni styrk að fjárhæð kr. 1.602.760 til greiðslu fasteignagjalda.

Málsnúmer 1611204

11

Ársreikningur Garðabæjar 2016 - tillaga að afskrift krafna.

Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 1.901.096

Málsnúmer 1702083

12

Opnun tilboða í framkvæmdir við endurnýjun gatna og lagna við Hagaflöt og Móaflöt.

Eftirfarandi tilboð lögð fram í framkvæmdir við endurnýjun á götum og veitum í Hagaflöt og Móaflöt.

Steinmótun ehf. kr. 161.537.500

Ljósþing ehf/Alma Verk ehf kr. 172.672.500

Kostnaðaráætlun kr. 167.000.000

Yfirferð tilboða er ólokið og er afgreiðslu frestað

Málsnúmer 1702340

13

Bréf Skógræktarfélags Garðabæjar um endurskoðun samstarfssamnings, dags. 22.02.17.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja endurskoðun samnings við Skógræktarfélag Garðabæjar.

Í lok fundar, utan dagskrár, gerði bæjarverkfræðingur grein fyrir framkvæmd snjómoksturs í framhaldi af mikilli snjókomu aðfaranótt sunnudagsins 26. febrúar sl. Umræða var um málið og kom fram að í öllum meginatriðum hafi gengið vel að opna stofnbrautir, helstu tengibrautir og gönguleiðir. Í framhaldi af því væri unnið að mokstri í húsagötum og á gangbrautum.


Fylgiskjöl