Þernunes 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
8. (1774). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnari Bachmann, kt. 280664-2789, leyfi fyrir innri breytingum á núverandi húsi að Þernunesi 1.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
18. (801). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga við núverandi hús að við Þernunes 1. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst ein athugasemd varðandi skerðingu á útsýni. Athugasemd verður svarað. María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
05
45. (1762). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga við núverandi hús að við Þernunes 1. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst ein athugasemd varðandi skerðingu á útsýni. Athugasemd verður svarað.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
17. fundur
Lögð fram öðru sinni umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á íbúðarhúsinu að Þernunesi 1. Lagt fram erindi sem borist hefur þar sem gerð er sú athugasemd að breytingin hafi hugsanlega áhrif á útsýni frá aðliggjandi lóð.
Skipulagsstjóri og byggingarfulltrúi gera grein fyrir niðurstöðu að lokinni skoðun.
Skipulagsnefnd telur að breyting skerði ekki útsýni frá aðliggjandi lóð. Breytingarnar eru alfarið í samræmi við deiliskipulag Arnarness sem fellt hefur verið úr gildi.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugsemd við að byggingarleyfið verði veitt og felur skipulagsstjóra að svara athugasemdinni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
16. fundur
Tillaga lögð fram að lokinni grenndarkynningu. Athugasemd hefur borist og hún lögð fram.
Tillögunni ásamt athugasemd vísað til skoðnar hjá tækni og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
14. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu. Ein athugasemd hefur borist. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
09
12. (795). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga við núverandi hús að Þernunesi 1.
Bæjarráð Garðabæjar
10
32. (1749). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynna samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga við núverandi hús að Þernunesi 1.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
11
11. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir ýmsum breytingum á íbúðarhúsinu innanhúss sem utan. Breytingartillögurnar eru í samræmi við deiliskipulag Arnarness. Þar sem að deiliskipulagið hefur verið fellt úr gildi og því um gróið hverfi án deiliskipulags að ræða vísar skipulagsnefnd umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulagslaga nr 123/2010.
Grenndarkynna skal eigendum Þernuness 3, Súluness 5,7, 9 og 17.