45. (1762). fundur
45. (1762). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
22.11.2016
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - varamaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1607083
01
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Dyngjugötu 1-3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að falla frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi vegna frávika frá ákvæðum skilmála um innganga í tvær íbúðir, þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga..
Baldur Ólafur Svavarsson, vék sæti við afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1608482
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Hliðsnes 2
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að gera ekki athugasemd við útgáfu á byggingarleyfi vegna breytinga á hesthúsi þar sem ekki er verið að breyta notkun hússins til íbúðar eða atvinnustarfsemi.
Málsnúmer 1609345
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Holtsbúð 89.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu á byggingarleyfi samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og er fallið frá grenndarkynningu þar sem umsóknin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins sbr. 2.ml. 3. mgr. sömu greinar.
Málsnúmer 1409116
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Holtsveg 45.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að falla frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi vegna frávika frá ákvæðum skilmála um fjölda bílastæða, þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1409117
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Holtsveg 47.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að falla frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi vegna frávika frá ákvæðum skilmála um fjölda bílastæða, þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1512258
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Mosagötu 1 - 3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að falla frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi vegna frávika frá ákvæðum skilmála um stærðir íbúða og fjölda bílastæða, þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Baldur Ólafur Svavarsson, vék sæti við afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1607131
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Mosagötu 5 - 7.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að falla frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi vegna frávika frá ákvæðum skilmála um stærðir íbúða og fjölda bílastæða, þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Baldur Ólafur Svavarsson, vék sæti við afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1605449
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Þernunes 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga við núverandi hús að við Þernunes 1. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst ein athugasemd varðandi skerðingu á útsýni. Athugasemd verður svarað.
Málsnúmer 1610133
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna breytinga á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Sunnuflöt 28.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um breytingu á byggingarreit lóðarinnar við Sunnuflöt 28, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynning er skilyrt um samþykki lóðarhafa við Sunnuflöt 26.
Málsnúmer 1512105
10
Bréf Golfklúbbsins Odds um styrk vegna Evrópumóts kvennalandsliða, dags. 08.11.16
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611137
11
Bréf Kristjáns Jóhannessonar varðandi snjómokstur, dags. 12.11.16.
Í bréfinu er áskorun til bæjaryfirvalda að standa vel að snjómokstri frá innkeyrslum húsa.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611143
12
Bréf vinnumálstofnunar um innleiðingu á nýju húsnæðisbótakerfi, dags. 11.11.16.
Málsnúmer 1611144
13
Tilkynning um sölu hestshúss við Suðurnesveg vegna forkaupsréttar.
Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1611150
14
Bréf SSH um tillögu að samkomulagi aðildarsveitarfélaga um undirbúning að innleiðingu hágæða almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu, dags. 14.11.16.
Bæjarráð samþykkir að leggja við bæjarstjórn að samþykkja aðild að samningnum enda verði hann samþykktur í öllum aðildarsveitarfélögunum.
Bæjarráð áréttar mikilvægi þess að ríkisvaldið komi að eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu með aðkomu að uppbyggingu Borgarlínu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611156
15
Bréf félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla um styrk fyrir árið 2017, dags. 14.11.16.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611157
16
Bréf Samtaka um kvennaathvarf um styrk árið 2017, dags. í nóvember 2017.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1611192
17
Bréf Alþjóðaskólans um húsnæðismál, dags. 16.11.16.
Málsnúmer 1611046
18
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulagslýsingu fyrir þróunarsvæði við Kársnes.
Lögð fram.
Málsnúmer 1604144
19
Bréf íbúa við Frjóakur um lagfæringar á graseyjum, dags. 14.11.16.
Bæjarráð ítrekar afgreiðslu frá fundi 16. ágúst sl. þar sem fram kemur að frágangur götunnar er í samræmi við uppdrætti samkvæmt deiliskipulagi en tekur jákvætt í erindi um einstaka breytingar á vegum íbúa í samráði við tækni- og umhverfissvið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1512282
20
Bréf Mannvirkjastofnunar um brunavarnaáætlun, dags. 14.11.16.
Í bréfinu er vakin athygli á að brunavarnaáætlun sveitarfélagsins er fallin úr gildi.
Bæjarstjóra falið að ræða málið í stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1410266
21
Tilboð í framkvæmdir við Urriðaholtsskóla.
Tilboð í framkvæmdirnar voru lögð fram á fundi bæjarráðs 8. nóvember sl.
Bæjarráð samþykkir að hafna öllum tilboðum sbr. ákvæði 0.2.2. í skilmálum útboðs- og verklýsingar.
Bæjarráð felur bæjarverkfræðingi að bjóða framkvæmdir út að nýju ásamt framkvæmdum við næsta áfanga sem er nr. 04 framkvæmdir innanhúss.
Baldur Ólafur Svavarsson, vék sæti við afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1609336
22
Bréf félags atvinnurekenda varðandi álagningu fasteignaskatts, dags. 15.11.16.
Málsnúmer 1503196
23
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2016 - viðaukar 10 og 11
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu að viðauka nr. 10 og 11 við fjárhagsáætlun 2016.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 10 Heilbrigðiseftirlit kr. 6.200.000 færist af málaflokki 08 á málaflokk 03.
Viðauki 11 Fasteign Ísafoldar, hjúkrunarheimilis verður færð til eignar sem langtímakrafa (leigueign) en ekki meðal varanlegra fastafjármuna.
Niðurstöður rekstrarreiknings breytast með eftirfarandi hætti.
Hagnaður ársins: var (20.405) verður 25.405
Nánari greininga áhrifa er sýnd á fylgiskjali.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605502
24
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017-2020.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu við greiningu á gögnum og upplýsingum sem liggja fyrir milli umræðna. Unnið er að samantekt ábendinga frá íbúum sem verður kynnt á fundi bæjarfulltrúa um fjárhagsáætlun 24. nóvember nk.