Beint í efni

Beiðni um viðræður um húsnæðismál Alþjóðaskólans

Málsnúmer 1611192

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

4. fundur

Lögð fram umsókn Alþjóðaskólans um staðsetningu bráðabirgðabyggingar á opnu svæði austan Þórsmerkur og norðan Ægisgrundar. Svæðið sem byggingin er sýnd á er opið grænt svæði samkvæmt aðalskipulagi og deiliskipulagi. Alþjóðaskólinn hefur nú fengið tímabundna astöðu í húsinu Þórsmörk sem er í eigu Garðabæjar. Ljóst er að ef að svæðið þar sem byggingin er sýnd á að verða skólalóð þá þarf að ráðast í breytingar bæði á aðalskipulags og deiliskipulagsstigi. Tillögunni vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Bæjarráð Garðabæjar

02

8. (1823). fundur

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til málsmeðferðar skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

48. (1814). fundur

Bæjarráð vísar málinu til nánar skoðunar tækni- og umhverfissviðs.

Bæjarráð Garðabæjar

04

22. (1788). fundur

Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um að Alþjóðaskólinn á Íslandi fái afnot af húsnæðinu Þórsmörk enda verði húsnæðið að hluta endurbætt og aðkoma að húsinu verði tengd við hringtorg við Vífilsstaðaveg.

Bæjarráð tekur jákvætt í málið og felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

05

28. fundur

Beiðni Alþjóðaskólans um viðræður um húsnæðismál og innheimtu skólagjalda lögð fram. Að mati skólanefndar hefur Alþjóðaskólinn stuðlað að aukinni breidd í skólastarfi í bænum og mikilvægt að lausn finnist á húsnæðismálum skólans sem fyrst. Ræddar voru upphaflegar forsendur þess að einkaskólar í Garðabæ skyldu ekki innheimta skólagjöld af bæjarbúum. Í kjölfarið var fræðslu og menningarsviði falið að útbú minnisblað varðandi innheimtu skólagjalda.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

18. (801). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

07

45. (1762). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og til umfjöllunar í skólanefnd.

Fylgiskjöl