Beint í efni

4. fundur

08.03.2018
Skipulagsnefnd Garðabæjar

4. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

08.03.2018

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1612146

01

Arnarnes, endurauglýsing deiliskipulags

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Arnarness að lokinni kynningu sem fór fram frá 13.október til 27.nóvember 2017. Lögð fram 6 erindi með athugasemdum sem bárust innan athuugasemdafrests. Lögð fram tillaga að svörum við athugasemdum og tillögu að viðbrögðum við þeim. Athugsemdir kalla aðeins á lítilsháttar lagfæringar.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið í samræmi við 3.mgr. 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 með þeim lagfæringum sem fram koma í tillögu að svörum. Skipulagsstjóra falið að senda svör við athugasemdum til þeirra sem það gerðu og tillöguna ásamt fylgigögnum til Skipulagsstofnunar til athugunar.

Málsnúmer 1802149

02

Unnargrund 10-18 - DSK breyting, fella niður göngustíg

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir því að göngustígur á milli lóðanna Unnargrund 18 og 16 annarsvegar og 10, 12 og 14 hinsvegar verði felldur út. Ástæðan er mikill hæðarmunur milli lóða og óhentug hæðarlega stígsins.

Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga. Í samræmi við 3.mgr. 44.gr. sömu laga fellur skipulagsnefnd frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annara en umsækjanda sem eru byggingarsamvinnufélag eldri borgara í Garðabæ og verðandi lóðarhafar.

Málsnúmer 1611192

03

Beiðni um viðræður um húsnæðismál Alþjóðaskólans

Lögð fram umsókn Alþjóðaskólans um staðsetningu bráðabirgðabyggingar á opnu svæði austan Þórsmerkur og norðan Ægisgrundar. Svæðið sem byggingin er sýnd á er opið grænt svæði samkvæmt aðalskipulagi og deiliskipulagi. Alþjóðaskólinn hefur nú fengið tímabundna astöðu í húsinu Þórsmörk sem er í eigu Garðabæjar. Ljóst er að ef að svæðið þar sem byggingin er sýnd á að verða skólalóð þá þarf að ráðast í breytingar bæði á aðalskipulags og deiliskipulagsstigi. Tillögunni vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Málsnúmer 1712109

04

Smiðsbúð 3, fyrirspurn um stækkun byggingarreits

Skipulagsnefnd leggur áherslu á að tekið verði heilstætt á umsóknum um stækkun byggingarlóða á baklóðum í Iðnbúð/Smiðsbúð. Fyrirspurn vísað til liðar 7 í þessari fundargerð.

Málsnúmer 1802397

05

Smiðsbúð 7 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Skipulagsnefnd leggur áherslu á að tekið verði heilstætt á umsóknum um stækkun byggingarlóða á baklóðum í Iðnbúð/Smiðsbúð. Fyrirspurn vísað til liðar 7 í þessari fundargerð.

Málsnúmer 1712041

06

Smiðsbúð 4, 6 og 8. Dsk br.

Skipulagsnefnd leggur áherslu á að tekið verði heilstætt á umsóknum um stækkun byggingarlóða á baklóðum í Iðnbúð/Smiðsbúð. Fyrirspurn vísað til liðar 7 í þessari fundargerð.

Málsnúmer 1802380

07

Búðir, Iðnbúð-Smiðsbúð, dsk br, byggingarreitir á baklóðum

Í ljósi þeirra fyrirspurna og umsókna um stækkun bygginga á baklóðum húsa í Iðnbúð/Smiðsbúð felur skipulagsnefnd skipulagsstjóra að undirbúa stefnumótun um framtíð svæðisins. Ekki verði gerðar breytingar á byggingarreitum fyrr en að fenginni niðurstöðu þeirrar setfnumótunar.

Málsnúmer 1801109

08

Túnfit 2 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir steyptum stoðveggjum á lóðarmörkum sem snúa að Garðfit og Túnfit. Hæsti hluti veggja er samkvæmt umsókn rúmir 3 metrar yfir landi.

Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Guðrún Dóra Brynjólfdóttir vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1710094

09

Aðalskipulag Reykjavíkur - Laugavegur-Skipholt, reitur 25

Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 sem nær til reits við Skipholt. Tillaga er nú í auglýsingu. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Málsnúmer 1802369

10

Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, iðnaður og önnur landfrek starfsemi

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við verklýsinguna.

Málsnúmer 1802370

11

Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, breytt afmörkun landnotkunar

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við verklýsinguna.