Unnargrund 10-18 - DSK breyting, fella niður göngustíg
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
5. (827). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem gert er ráð fyrir að felldur verði niður göngustígur milli lóða við Unnargrund. Með vísan til heimildar í 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga er fallið frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki aðra en hagsmuni sveitarfélagsins og umsækjanda.
María Grétarsdóttir situr hjá.
Sturla Þorsteinsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
10. (1825). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem gert er ráð fyrir að felldur verði niður göngustígur milli lóða við Unnargrund. Með vísan til heimildar í 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga er fallið frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki aðra en hagsmuni sveitarfélagsins og umsækjanda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
4. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir því að göngustígur á milli lóðanna Unnargrund 18 og 16 annarsvegar og 10, 12 og 14 hinsvegar verði felldur út. Ástæðan er mikill hæðarmunur milli lóða og óhentug hæðarlega stígsins.
Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga. Í samræmi við 3.mgr. 44.gr. sömu laga fellur skipulagsnefnd frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annara en umsækjanda sem eru byggingarsamvinnufélag eldri borgara í Garðabæ og verðandi lóðarhafar.