Beint í efni

5. (827). fundur

15.03.2018
Bæjarstjórn Garðabæjar

5. (827). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

15.03.2018

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Snævar Sigurðsson - varamaður
  • Gísli Geir Jónsson - varamaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.

Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 1. mars 2018 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1803006F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 6/3 ´18.

Gunnar Einasson, bæjarstjóri, ræddi 12. tl., ályktun grunnskólakennara í Garðabæ varðandi gerð kjarasamnings.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 12. tl., ályktun grunnskólakennara í Garðabæ varðandi gerð kjarasamnings og 13. tl., bréf leikskólastjóra varðandi leiðir til að efla starfsumhverfi leikskólakennara.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 12. tl., ályktun grunnskólakennara í Garðabæ varðandi gerð kjarasamnings.

Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1803015F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 13/3 ´18.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnes, 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að lýsingu fyrir nýtt deiliskipulag á norðurnesi Álftaness og 15. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi kynningu á tillögu að deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu ? niðurstöður samráðshóps Vegagerðarinnar, SSH og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og 21. tl., minnisblað tækni- og umhverfissviðs um endurnýjun á opnum leikvöllum í Garðabæ 2018.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 21. tl., minnisblað tækni- og umhverfissviðs um endurnýjun á opnum leikvöllum í Garðabæ 2018.

Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu ? niðurstöður samráðshóps Vegagerðarinnar, SSH og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 21. tl., minnisblað tækni- og umhverfissviðs um endurnýjun á opnum leikvöllum í Garðabæ 2018.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 27. tl., fyrirspurn Maríu Grétarsdóttur, bæjarfulltrúa varðandi leigu á íbúðum í eigu Garðabæjar og 23. tl., bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga.

María Grétarsdóttir, ræddi 22. tl., framlag til stjórnmálasamtaka 2018 og vakti athygli á reglu um skiptingu framlaga á kosningaári.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 22. tl, framlag til stjórnmálasamtaka 2018.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, kvaddi sér hljóðs og ræddi 23. tl., bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga.

Fundargerðin sem er 27 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

2.10 - 1802150 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Víkurgötu 11.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis einbýlishúss við Víkurgötu 11 og að leyft verði að hafa einfaldan bílskúr í stað þess að hafa tvöfaldan eins og skilmálar kveða á um. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fylgiskjöl

2.11 - 1801385 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 27.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Kinnargötu 27 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 6 í 7.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 794.217 á íbúð m.v. BVT 686,0 stig í mars 2018 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Fylgiskjöl

2.13 - 1801202 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Haukanes 12.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að grenndarkynning vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir breytingum við húsið að Haukanesi 12 falli niður samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 enda aðeins um að ræða breytingar á innra skipulagi sem varða ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.

Fylgiskjöl

2.14 - 1801229 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi við Garðprýði 7.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis einbýlishúss við Garðprýði 7, en byggingin fer lítillega út fyrir byggingarreit. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fylgiskjöl

2.15 - 1703045 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um kynningu tillögu að deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að tillaga að deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts verði kynnt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund þar sem tillagan verður kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum.

Fylgiskjöl

2.3 - 1612146 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu um nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnes.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Arnarnes. Tillagan var auglýst og bárust sex athugasemdir sem afstaða hefur verið tekin til og liggja fyrir svör við athugasemdum. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Fylgiskjöl

2.4 - 1802149 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Grunda og Ása vegna göngustígs við lóðirnar að Unnargrund 16 og 18.

Bæjarstjórn samþykkir með níu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem gert er ráð fyrir að felldur verði niður göngustígur milli lóða við Unnargrund. Með vísan til heimildar í 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga er fallið frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki aðra en hagsmuni sveitarfélagsins og umsækjanda.

María Grétarsdóttir situr hjá.

Sturla Þorsteinsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

2.7 - 1803108 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu á tillögu fyrir nýtt deiliskipulag á norðurnesi Álftaness.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lýsingu samkvæmt 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að deiliskipulagi fyrir norðurnes Álftaness og matslýsingu fyrir umhverfismat skipulagsins samkvæmt lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Fylgiskjöl

2.8 - 1704011 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu um deiliskipulag Holtstúns á Álftanesi.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Holtstúns á Álftanesi. Samkvæmt heimild í 2. mgr. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga er fallið frá gerð lýsingar og kynningar þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi.

Fylgiskjöl

2.9 - 1711043 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 34.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 34 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 12 í 15.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 34 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 12 í 15.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1802039F

03

Fundargerð fjölskylduráðs frá 8/3 ´18.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1802020F

04

Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 14/2 ´18.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1803013F

05

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 9/3 ´18.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl., menningar- og fræðasmiðstöð í Garðabæ og vakti athygli á opnum íbúafundi sem haldinn verður miðvikudaginn 11. apríl nk.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1803010F

06

Fundargerð skipulagsnefndar frá 8/3 ´18.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl., deiliskipulag í Iðnbúð og Smiðsbúð og 10. tl. aðalskipulag Reykjavíkur iðnaðarsvæði.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1803011F

07

Fundargerð skipulagsnefndar frá 9/3 ´18.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1802037F

08

Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla frá 1/3 ´18.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1802055

09

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 2/3 ´18.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1801362

10

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 7/3 ´18.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 9. tl., framlengingu á samningi við Sorpstöð Suðurlands.

Gunnar Einarsson, ræddi 9. tl., framlengingu á samningi við Sorpstöð Suðurlands.

Sturla Þorsteinsson ræddi stöðu mála varðandi endurvinnslustöðina að Dalvegi.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1801175

11

Fundargerð stjórnar SSH frá 5/3 ´18.

Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., málefni skíðasvæðanna.

Gunnar Einarsson, ræddi 4. tl. málefni skíðasvæðanna.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1711152

12

Ársreikningur Garðabæjar 2017 (fyrri umræða)

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2017. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum.

Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Á fundinum er lögð fram skýrsla endurskoðenda.

Til máls tóku:

Áslaug Hulda Jónsdóttir og Gunnar Valur Gíslason.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2017 til síðari umræðu í bæjarstjórn.