Túnfit 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
18. (1833). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Bryndísi Alfreðsdóttur, kt. 300578-4389 leyfi til reisa steyptan skjólvegg á lóðinni að Túnfit 2.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Lögð fram öðru sinni tillaga að steyptum stoðveggjum og skjólveggjum á lóð. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt á meðan veggir verða staðsettir þar sem að brún grasflatar er í dag. Mikilvægt að frá lóðarmörkum að götu og að veggjum verði svæði fyrir gróður eins það er útfært í dag en það hefur mikil áhrif á yfirbragð lóðarinnar sem er á áberandi stað í hverfinu.
Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
4. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir steyptum stoðveggjum á lóðarmörkum sem snúa að Garðfit og Túnfit. Hæsti hluti veggja er samkvæmt umsókn rúmir 3 metrar yfir landi.
Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Guðrún Dóra Brynjólfdóttir vék af fundi undir þessum lið.