6. fundur
6. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
12.04.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Hnoðraholt og Vetrarmýri, dsk br v. fjölnota íþróttahúss
Skipulagsráðgjafateymi, Sigurður Einarsson arkitekt, Jóhanna Helgadóttir skipulagsfræðingur og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt kynntu drög að lýsingu aðalskipulagsbreytingar sem nær til Vífilsstaðalands (Hnoðraholt, Vífilsstaðir, Smalaholt, Rjúpnahæð. Drögin gera ráð fyrir því að svæðið verði skilgreint sem rammahluti Aðalskipulags og fái ferli sem slíkt. Áherslur skipulagsbreytingarinnar verði´m.a.sátt við nálæga náttúru, raunhæf áfangaskiptin, framsýn og fjölbreytni íþróttasvæðis, fyrsta flokks golfvöllur, fjölbreytt húsagerð og búsetuform.
Lögð fram drög að deiliskipulagsbreytingu á gildandi deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
02
Athafnasvæði á Rjúpnahæð - breyting á vaxtarmörkum samkvæmt svæðisskipulagi
Lögð fram tillaga að breytingu svæðisskipulags, Höfuðborgarsvæðið 2040 þar sem gert verður ráð fyrir stækkun breytingu á vaxtamörkum byggðar í Rjúpnahæð og Rjúpnadal. Samkvæmt tillögu yrðu mörkin frá bæjarmörkum efst á Smalaholti að Elliðavatnsvegi á móts við aðkomu að hesthúsabyggð á Kjóavöllum og bættust þannig 20 ha við það svæði sem er innan marka. Ástæðan er sú ósk Garðabæjar að svæði í sunnanverðri Rjúpnahæð og austurhluta Rjúpnadals yrðu skilgreind sem atvinnusvæði í aðalskipulagi. Tillagan kallar á breytingu Aðalskipulags og mælir nefndin með því að sú vinna sem fram fer við gerð rammahluta Aðalskipulags í Vífilsstaðalandi geri ráð fyrir umræddu atvinnusvæði.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.
03
Álftanes-Miðsvæði. Deiliskipulag
Þórhallur Sigurðsson arkitekt hjá Andersen & Sigurdsson arkitektum kynnti tillögu að deiliskipulagi Miðsvæðis Álftaness (Suðurnes). Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar samkvæmt 3.mgr.40.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Halda skal kynningargfund þann 26.apríl í Álftanesskóla.
04
Bessastaðir. Dsk breyting vegna aðkomu.
Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskpulagi Bessastaða sem gerir ráð fyrir að breyttri legu og stækkun bílastæðasvæðis,lagfærinumg á aðkomu og svæðis framan við kirkju. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan skal kynnt á íbúafundi þann 26.apríl.
05
Reiðskemma Sóta
Lögð fram ný útfærsla á reiðskemmu Sóta. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
06
Breiðholt Garðahverfi, fyrirspurn um dsk breytingu
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis sem nær til svæðis í kringum Breiðholt. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
07
Höll á Garðaholti, breyting á dsk Garðahverfis
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulag Garðahverfis sem gerir ráð fyrir stækkun deiliskipulagssvæðis vestan við Grænagarð og byggingarreitum hjá bæjarstæði hjáleigunnar Hallar. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
08
Hraunprýði 6-12- Dsk breyting
Grenndarkynningu lýkur 21. mars
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðanna Hraunprýði 6,8,10 og 12 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir því að unnt verður að breyta bílskýli í lokaða bílageymslu. . Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt.
09
Túnfit 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram öðru sinni tillaga að steyptum stoðveggjum og skjólveggjum á lóð. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt á meðan veggir verða staðsettir þar sem að brún grasflatar er í dag. Mikilvægt að frá lóðarmörkum að götu og að veggjum verði svæði fyrir gróður eins það er útfært í dag en það hefur mikil áhrif á yfirbragð lóðarinnar sem er á áberandi stað í hverfinu.
Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.
10
Seinakur neðan götu, dsk br.
Lögð fram tillaga lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis sem gerir ráð fyrir því að 5 einbýlishúsalóðir breytist í 8 keðjuhúsalóðir í tveimur aðskildum lengjum.
Skipulagsnefnd hafnar tillögunni og bendir á að uppbygging einbýlishúsa í Akrahverfi hafi tekist vel og umræddar lóðir falli best inn í þá mynd.
11
Hegranes 28 - Umsókn um byggingarleyfi
Grenndarkynningu lýkur 19. mars
Umsókn um byggingarleyfi lögð fram að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 44.grein Skipulagslaga nr.123/2010. Engar athugasemir hafa verið gerðar við umsóknina. Skipulagsnefnd gerir ekki athugsemd við að byggingarleyfi verði veitt.
12
Súlunes 25 - Umsókn um byggingarleyfi og skipulagsbreytingu vegna viðbóta
Skipulagsnefnd frestar málinu þar til að þegar samþykkt deiliskipulag Arnarness hefur tekið gildi.
13
Blikanes 14- Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd frestar málinu þar til að þegar samþykkt deiliskipulag Arnarness hefur tekið gildi.
14
Holtsbúð 45, br á dsk Ásbúðar/Holstbúðar
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Ásbúða og Holtsbúðar sem gerir ráð fyrir að byggingarreitur stækki um 2,8 m til suðurs fyrir geymslu í kjallara. Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega og vísar henni til grenndarkynningar samkvæmt 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Grenndarkynna skal eigendum Holtsbúðar 20, 22, 43 og 47.
15
Nýtt deiliskipulag fyrir Ásvallabraut, tenging Vallahverfis og Áslands við Kaldárselsveg.
Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Hafnarfjarðar og tillaga að deiliskipulagi fyrir Ásvallabraut og tengingu við Valla- og Ásland.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillögurnar.
16
Verkefnislýsing vegna breytingar á svæðisskipulagi - Vaxtarmörk á Álfsnesi
Lögð fram verkefnislýsing að breytingu svæðsskipulagsins Höfuðrborgarsvæðið 2040 sem gerir ráð fyrir breyttum vaxtamörkum á Álfsnesi. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða lýsingu.
17
Borgarlína. Breyting á Svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins 2040.
Lagt fram erindi frá svæðisskipulagsstjóra höfuðborgarsvæðisins dags. 6. mars 2018 varðandi samþykkt Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins á breytingu á svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins 2040 varðandi samgöngu og þróunarása fyrir Borgarlínu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir breytingu á svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins 2040 þar sem skilgreindir eru samgöngu- og þróunarásar sbr. 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
18
Hraunvangur 7, deiliskipulag
Lögð fram tillaga breytingu deiliskipulags Hleina að Langeyrarmelum sem gerir ráð fyrir breytingu á notkun á reit F2 við Hrafnistu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.