Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi nýtt deiliskipulag fyrir Ásvallabraut, tenging Vallahverfis og Áslands við Kaldárselsveg.
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Hafnarfjarðar og tillaga að deiliskipulagi fyrir Ásvallabraut og tengingu við Valla- og Ásland.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillögurnar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
12. (1827). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
9. fundur
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við deilskipulagstillöguna sem slíka en bendir á að samkvæmt aðalskipulagi Hafnarfjarðar er gert ráð fyrir mislægum gatnamótum Ásvallabrautar (Ofanbyggðavegar) og Kaldárselsvegar. Á deiliskipulagsuppdrætti er sýnt hringtorg á þessum gatnamótum sem er reyndar utana þess svæðis sem deiliskipulagstillagan nær til. Skipulagsnefnd Garðabæjar leggur ríka áherslu á að haft verði í huga að endurskoðun á stofnvegakerfi höfuðborgarsvæðisins geti leitt í ljós ýmis atriði sem varða tengingar á millli "Ofanbyggðarvegar" og Reykjanesbrautar sem breytt var í síðustu endurskoðun aðalskipulags Hafnarfjarðar. Þær niðurstöður gætu mælt með því að ráðist yrði í skipulagsbreytingar beggja vegna bæjarmarka. Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði og leggur til að fundað verði með skipulagsyfirvöldum í Hafnarfirði vegna þessa máls.
Bæjarráð Garðabæjar
06
20. (1786). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.