9. fundur
9. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
17.08.2017
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1302243
01
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Lögð fram tillaga að Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 ásamt athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Lögð fram greining athugasemda og umsagna sem aðalskipulagsráðgjafi hefur unnið. Vísað til úrvinnslu aðalskipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviðs.
Málsnúmer 1706207
02
Tjaldanes 1 - DSK breyting
Lögð fram fyrirspurn um tillögu að breytingu bílastæða á lóðinni Tjaldanes 1 sem gerir ráð fyrir breytingu á útfærslu bílastæðis við Tjaldanes. Við byggingarleyfisveitingu árið 1973 voru heimiluð bílastæði sem lágu að Hegranesi en ekki Tjaldanesi eins og mæliblöð gerðu ráð fyrir. Hafa bílastæði hússins því verið við Hegranes síðan. Samþykki lóðarhafa Tjaldaness númer 3 við tilfærslu bílastæða liggur fyrir. Ekkert deiliskipulag er í gildi í Arnarnesi. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti leyfi fyrir breytingunum og fellir grenndarkynningu niður þar sem samþykki nágranna liggur fyrir sbr. 3.mgr.44.gr.Skipulagslaga. Umsækjendur þurfa að ná samkomulagi við bæjarverkfræðing vegna kostnaðar sem hlýst af breytingunum við götu og gangstétt.
Málsnúmer 1612163
03
Mosagata 9-27 (9-15), dsk breyting
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðanna Mosagata 9-27 að lokinni auglýsingu sem fór fram 1.júní til 13.júlí sl. Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðin verði sameinuð í eina lóð. Gert er ráð fyrir sameiginlegri bílgeymslu á lóð. Fjölbýlihúsum á lóð verði snúið og svalgangar verði heimilaðir á garðhlið. Fallið er frá hugmynd um parhús mót Mosagötu en íbúðarhluti færður að Mosagötu. Íbúðum fjölgar um tvær.
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt í bæjarstjórn þann 18.maí 2017 í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr 123/2010.
Málsnúmer 1707019
04
Keldugata 2, 4-6, 8-12. 14-18 og 20. Dsk breyting.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags lóða við ofanverða Keldugötu. Lagður fram tölvupóstur frá íbúum við Keldugötu. Skipulagsnefnd felur tækni-og umhverfissviði að ræða tillöguna við íbúa í götunni áður en ákvörðun verður tekin um framhald málsins.
Málsnúmer 1703045
05
Deiliskipulag áfanga 1-4 í austurhluta Urriðaholts
Lögð fram verkefnislýsing deiliskipulags austurhluta Urriðaholts að lokiinni kynningu. Umsagnir hafa borist frá Skipulagsstofnun, Minjastofnun og Vegagerðinni. Umsögnum vísað til úrvinnslu hjá deiliskipulagsráðgjafa og tækni og umhverfissviði.
Málsnúmer 1706130
06
Mávanes 21 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingum á einbýlishúsinu að Mávanesi 21 að lokinni grenndarkynningu. Athugasemdir hafa borist frá nágrönnum og erindi þeirra lagt fram. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1706069
07
Urriðaholtsstræti 30 - DSK breyting
Tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 3 sem nær til lóðarinnar Urriðaholtsstræti 30 lögð fram að lokinni auglýsingu sem fór fram 5.júlí til 16.ágúst sl.. Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðum á lóðinni fjölgi um eina íbúð, þ.e. úr 12 í 13
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt í bæjarráði þann 4.júlí 2017 í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr 123/2010.
Málsnúmer 1707120
08
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Gufunes
Lögð fram verkefnislýsing á tillögu að breytingu aðalskipulags Reykjavíkur sem nær til svæðis í Gufunesi. Skipulagsnefnd gerir enga athugasemd við verklýsinguna.
Málsnúmer 1705269
09
Nýtt deiliskipulag fyrir Kaldársel, Kaldárbotna og Gjárnar í Hafnarfirði
Skipulagsnefnd tekur undir erindi skipulagsstjóra til Hafnarfjarðarbæjar og gerir enga athugasemd við tillöguna. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að vel verði hugað að tengingum útivistarstíga og reiðleiða á bæjarmörkum í hinu forna Garðakirkjulandi. Skipulagsnefnd vísar því til aðalskipulagsráðgjafa að skoða tengingar útivistarstíga í tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 milli Búrfellsgjár og Kaldársels.
Málsnúmer 1705268
10
Nýtt deiliskipulag fyrir Ásvallabraut, tenging Vallahverfis og Áslands við Kaldárselsveg.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við deilskipulagstillöguna sem slíka en bendir á að samkvæmt aðalskipulagi Hafnarfjarðar er gert ráð fyrir mislægum gatnamótum Ásvallabrautar (Ofanbyggðavegar) og Kaldárselsvegar. Á deiliskipulagsuppdrætti er sýnt hringtorg á þessum gatnamótum sem er reyndar utana þess svæðis sem deiliskipulagstillagan nær til. Skipulagsnefnd Garðabæjar leggur ríka áherslu á að haft verði í huga að endurskoðun á stofnvegakerfi höfuðborgarsvæðisins geti leitt í ljós ýmis atriði sem varða tengingar á millli "Ofanbyggðarvegar" og Reykjanesbrautar sem breytt var í síðustu endurskoðun aðalskipulags Hafnarfjarðar. Þær niðurstöður gætu mælt með því að ráðist yrði í skipulagsbreytingar beggja vegna bæjarmarka. Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði og leggur til að fundað verði með skipulagsyfirvöldum í Hafnarfirði vegna þessa máls.
Málsnúmer 1707197
11
Furugrund 3, Breyting á aðalskipulagi. Tillaga á vinnslustigi
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskiplags Kópavogs sem er í forkynningu. Tillagan nær til veslunar og þjónustusvæðis við Furugrund í Fossvogsdal sem breytist í íbúðasvæði samkvæmt tillögunni. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Málsnúmer 1708231
12
Urriðaholtsstræti 14-20 - DSK breyting
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta sem gerir ráð fyrir því að lóðirnar Urriðaholtsstræti 14-16 og Urriðaholtsstræti 18-20 sameinist í eina lóð Urriðaholtsstræti 14-20. Þar sem að byggingarreitir bílageymslna á lóðinni liggja saman skapar það möguleika á samnýtingu þeirra. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis sé vikið frá kröfu 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga þar sem um óverulegt frávik sé að ræða sbr. 3.mgr. sömu greinar.