Beint í efni

Tjaldanes 1 - DSK breyting

Málsnúmer 1706207

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

13. (815). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu á byggingarleyfi vegna breytinga á legu bílastæða innan lóðarinnar við Tjaldanes 1.

Bæjarráð Garðabæjar

02

31. (1797). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að leyfa útgáfu á byggingarleyfi vegna breytinga á legu bílastæða innan lóðar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

9. fundur

Lögð fram fyrirspurn um tillögu að breytingu bílastæða á lóðinni Tjaldanes 1 sem gerir ráð fyrir breytingu á útfærslu bílastæðis við Tjaldanes. Við byggingarleyfisveitingu árið 1973 voru heimiluð bílastæði sem lágu að Hegranesi en ekki Tjaldanesi eins og mæliblöð gerðu ráð fyrir. Hafa bílastæði hússins því verið við Hegranes síðan. Samþykki lóðarhafa Tjaldaness númer 3 við tilfærslu bílastæða liggur fyrir. Ekkert deiliskipulag er í gildi í Arnarnesi. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti leyfi fyrir breytingunum og fellir grenndarkynningu niður þar sem samþykki nágranna liggur fyrir sbr. 3.mgr.44.gr.Skipulagslaga. Umsækjendur þurfa að ná samkomulagi við bæjarverkfræðing vegna kostnaðar sem hlýst af breytingunum við götu og gangstétt.