Beint í efni

31. (1797). fundur

22.08.2017
Bæjarráð Garðabæjar

31. (1797). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

22.08.2017

Kl. 08:00 - 08:20

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - varamaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1706207

01

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu um breytingar á bílastæðum innan lóðar við Tjaldanes 1.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að leyfa útgáfu á byggingarleyfi vegna breytinga á legu bílastæða innan lóðar.

Málsnúmer 1612163

02

Afgreiðsla skipulagsnefndar á tillögu um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriaðholts vegna lóðanna við Mosagötu 9-27 (9-15).

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Mosagötu 9-27 sem m.a gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 46 í 48 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 755.316 á íbúð m.v. BVT 652,4 stig í janúar 2017 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Málsnúmer 1707120

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu á tillögu um breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna svæðis í Gufunesi.

Lögð fram.

Málsnúmer 1706069

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar á tillögu um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðuhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 30.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 30, sem m.a. gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 12 í 13 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 755.316 á íbúð m.v. BVT 652,4 stig í janúar 2017 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Málsnúmer 1705269

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Kaldársel, Kaldárbotna og Gjárnar í Hafnarfirði.

Lögð fram.

Málsnúmer 1705268

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi nýtt deiliskipulag fyrir Ásvallabraut í Hafnarfirði.

Lögð fram.

Málsnúmer 1707197

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á aðalskipulagi Kópavogs vegna breyttrar landnotkunar við Furugrund 3.

Lögð fram.

Málsnúmer 1708231

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar á tillögu að breytingu á 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 14-20

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna sameiningar lóðanna við Urriðaholtsstræti 14-20. Breytingin telst óveruleg samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fellur grenndarkynning niður samkvæmt heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga.

Málsnúmer 1708198

09

Bréf íbúa við Espilund og Víðilund um framlengingu á mön við Vífilsstaðaveg, dags. 14.08.17.

Bæjarráð vísar bréfinu til tækni- og umhverfissviðs og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1701306

10

Bréf Kópavogsbæjar um tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna breyttrar landnotkunar á Nónhæð, dags. 10.08.17.

Málsnúmer 1708215

11

Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu um drög að breytingum á lögum um mannvirki, dags 15.08.2017.

Málsnúmer 1611150

12

Bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um þátttöku í stýrihóp SSH um Borgarlínu, dags. 08.06.17.