Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar á tillögu um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðuhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 30.

Málsnúmer 1706069

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

31. (1797). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 30, sem m.a. gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 12 í 13 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 755.316 á íbúð m.v. BVT 652,4 stig í janúar 2017 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

9. fundur

Tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 3 sem nær til lóðarinnar Urriðaholtsstræti 30 lögð fram að lokinni auglýsingu sem fór fram 5.júlí til 16.ágúst sl.. Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðum á lóðinni fjölgi um eina íbúð, þ.e. úr 12 í 13
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt í bæjarráði þann 4.júlí 2017 í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

03

25. (1791). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, vegna fjölgunar íbúða úr 12 í 13 á lóðinni við Urriðaholtsstræti 30.

Bæjarráð Garðabæjar

04

22. (1788). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, vegna fjölgunar íbúða úr 12 í 13 á lóðinni við Urriðaholtsstræti 30.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

7. fundur

Skipulagsstjóri gerir grein fyrir útskýringum hönnuðar á þeim vandamálum sem upp komu við hönnun hússins á lóðinni við krefjandi aðstæður. Niðurstaðan er sú að hönnuður hefur mælt með því að lóðarhafi sæki um fjölgun íbúða í húsinu um eina sem leysir vandann sem staðir er frammi fyrir.
Umsögn deiliskipulagshöfundar um tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 3 liggur fyrir og er hún jákvæð. Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðum á lóðinni fjölgi um eina íbúð, þ.e. úr 12 í 13
Skipulagsnefnd samþykkir að vísa umræddri tillögu að breytingu deiliskipulags í auglýsingu í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.