25. (1791). fundur
25. (1791). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
04.07.2017
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1703157
01
Aðkomutákn - kynning á vegum Jónsson & Le´mack.
Á fund bæjarráðs mættu Agnar Le´mack, Friðrik Kaldal Ágústsson, Þorleifur Gunnar Gíslason og Hrefna Sigurðardóttir, starfsmenn Jónsson&Le´mack. Kynntu þau hugmyndir um notkun á verðlaunautillögu að aðkomutákni í auglýsingum og kynningarefni á vegum Garðabæjar.
Málsnúmer 1605502
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 - Viðaukar 6-8.
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögum að viðaukum 6-8 við fjárhagsáætlun 2017.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2017 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 6 kr. 64.766.000 Vegna samnings við Hrafnistu um rekstur Ísafoldar.
Viðauki 7 kr. 4.000.000 Hækkun gjaldskrár vegna greiðslna til dagforeldra.
Viðauki 7 kr 5.000.000 Hækkun gjaldskrár vegna stuðningsfjölskyldna.
Viðauki 8 kr. 63.000.000 Hækkun framlags Jöfnunarsjós vegna málflokks fatlaðs fólk.
Viðauki 8 kr. 10.766.000 Lækkun á handbæru fé í árslok 2017.
Málsnúmer 1706324
03
Samrunaáætlun vegna slita á Fasteignafélaginu Löngulínu ehf.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn einnig undir þessum dagskrárlið og gerði grein fyrir tillögu að samrunaáætlun.
Bæjarráð samþykkir samrunaáætlun vegna slita á Fasteignafélaginu Löngulínu ehf., dags. 27. júní 2017. Félagið er alfarið í eigu Garðabæjar og er slitið án skuldaskila þar sem Garðabær yfirtekur allar eignir og skuldir félagsins.
Bæjarráð samþykkir umboð til bæjarstjóra til að undirrita samrunaáætlun, greinargerð og önnur gögn vegna málsins og felur KPMG að annast frágang málsins í samræmi við ákvæði í lögum um einkahlutafélög.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1706069
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 30.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, vegna fjölgunar íbúða úr 12 í 13 á lóðinni við Urriðaholtsstræti 30.
Málsnúmer 1706318
05
Bréf AFA JCDecaux varðandi uppsögn samnings, dags. 23.06.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1706320
06
Bréf Skógræktarfélags Reykjavíkur um hækkun framlags samkvæmt samningi um rekstur Heiðmerkur, dags. 01.06.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1706365
07
Bréf Íbúðalánasjóðs um sölu á íbúðum til sveitarfélaga, dags. 28.06.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1706369
08
Ársreikningur SSH 2016
Málsnúmer 1706370
09
Forkaupsréttur samkvæmt ákvæði í lóðarleigusamningi Bitakots við Sundlaug Álftaness.
Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1706373
10
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi áætlun vegna refaveiða 2017-2019, dags. 29.06.17.
Málsnúmer 1706325
11
Bréf Láru V. Júlíusdóttur, hrl. fh. Byggingafræðingafélags Íslands varðandi athugasemd um kvöð í söluskilmálum lóða, dags. 26.06.17.
Bæjarráð tekur almennt undir sjónarmið í bréfi bréfritara en telur að í þessu einstaka tilviki þar sem verið er að hanna hús í þegar byggðu hverfi sé ástæða til að gera ríkari kröfu til hönnuða.
Nám í arkitektúr er mun víðtækara og lengra en nám í byggingafræði en þeir sem mega kalla sig arkitekta hafa lokið meistaranámi og verða því taldir hafa þróað með sér færni og fagmennsku við úrlausn verkefna þar sem gera þarf ríkar kröfu við hönnun húsa m.t.t. legu lands og nálægðrar íbúðarbyggðar
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu.