Beint í efni

Samruni og niðurlagning

Málsnúmer 1706324

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

19. (821). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samruna Garðabæjar og Fasteignafélagsins Löngulínu ehf. sem tilkynnt var Ríkisskattstjóra og auglýst í Lögbirtingarblaðinu 24. ágúst 2017, útg. nr. 2017015859.

Bæjarstjórn samþykkir að veita KPMG umboð til að tilkynna um ofangreinda samrunaáætlun til fyrirtækjaskrár og fara fram á skráningu og leggja fram gögn sem til þarf.

Bæjarráð Garðabæjar

02

45 (1811). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samruna Garðabæjar og Fasteignafélagsins Löngulínu ehf. sem tilkynnt var Ríkisskattstjóra og auglýst í Lögbirtingarblaðinu 24. ágúst 2017, útg. nr. 2017015859.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að veita KPMG umboð til að tilkynna um ofangreinda samrunaáætlun til fyrirtækjaskrár og fara fram á skráningu og leggja fram gögn sem til þarf.

Bæjarráð Garðabæjar

03

25. (1791). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn einnig undir þessum dagskrárlið og gerði grein fyrir tillögu að samrunaáætlun.

Bæjarráð samþykkir samrunaáætlun vegna slita á Fasteignafélaginu Löngulínu ehf., dags. 27. júní 2017. Félagið er alfarið í eigu Garðabæjar og er slitið án skuldaskila þar sem Garðabær yfirtekur allar eignir og skuldir félagsins.

Bæjarráð samþykkir umboð til bæjarstjóra til að undirrita samrunaáætlun, greinargerð og önnur gögn vegna málsins og felur KPMG að annast frágang málsins í samræmi við ákvæði í lögum um einkahlutafélög.

Fylgiskjöl