Afgreiðsla skipulagsnefndar á tillögu um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriaðholts vegna lóðanna við Mosagötu 9-27 (9-15).
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
31. (1797). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Mosagötu 9-27 sem m.a gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 46 í 48 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 755.316 á íbúð m.v. BVT 652,4 stig í janúar 2017 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðanna Mosagata 9-27 að lokinni auglýsingu sem fór fram 1.júní til 13.júlí sl. Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðin verði sameinuð í eina lóð. Gert er ráð fyrir sameiginlegri bílgeymslu á lóð. Fjölbýlihúsum á lóð verði snúið og svalgangar verði heimilaðir á garðhlið. Fallið er frá hugmynd um parhús mót Mosagötu en íbúðarhluti færður að Mosagötu. Íbúðum fjölgar um tvær.
Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt í bæjarstjórn þann 18.maí 2017 í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr 123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
9. (811). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, vegna sameiningar lóðanna við Mosagötu 9-27.
Bæjarráð Garðabæjar
04
18. (1784). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga, vegna sameiningar lóðanna við Mosagötu 9-27.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts.
Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðin verði sameinuð í eina lóð. Gert er ráð fyrir sameiginlegri bílgeymslu á lóð. Fjölbýlihúsum á lóð verði snúið og svalgangar verði heimilaðir á garðhlið. Fallið er frá hugmynd um parhús mót Mosagötu en íbúðarhluti færður að Mosagötu. Íbúðum fjölgar um tvær.
Umsögn deiliskipulagshöfundar liggur fyrir og er hún jákvæð.
Skipulagsnefndar vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
1. fundur
Lagðar fram hugmyndir um breytingar á lóðinni Mosagata 9-27. Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.