1. fundur
1. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
12.01.2017
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1701067
01
Lyngássvæði-Rammaskipulag.
Höfundar vinningstillögu úr samkeppni um rammaskipulag á Lyngássvæði mættu á fund nefndarinnar og kynntu tillöguna. Það voru þau Sigurður Einarsson og Jóhanna Helgadóttir arkitektar hjá Batteríinu ehf, Þráinn Hauksson landlagsarkitekt hjá Landslagi ehf og Ólöf Kristjánsdóttir byggingarverkfræðingur hjá Mannviti.
Vísað til skipulasstjóra og tillöguhöfunda að fullvinna tillögu að rammaskipulagi svæðisins sem verði grundvöllur deiliskipulagsáfanga á svæðinu.
Málsnúmer 1608510
02
Hörgatún 1, dsk br, skipting eignar.
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Silfurtúns að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir því að einbýlishúsið að Hörgatúni 1 breytist í tvíbýlishús. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga.
Málsnúmer 1610043
03
Beiðni um skiptingu fasteignar að Hrísholti 11.
Lögð fram beiðni að skiptingu einbýlishússins að Hrísholti 11 í tvíbýlishús. 4 bílastæði eru á lóð auk tvöfaldrar bílageymslu. Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og vísar tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga. Grenndarkynna skal tillöguna öllum eigendum húsa við Hrísholt sem og við Eskiholt 16, 18 og 20.
Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 1606034
04
Hafnarfjarðarv/Vífilsstaðav. Endurbætur gatnamóta.
Skipulagsstjóri og bæjarverkfræðingur gera grein fyrir stöðu málsins. Ljóst að leggja þarf fram tillögur að breytingum eftirfarandi deiliskipulagsáætlana: Miðbær neðsta svæði, Ásgarður,Hörgatún 2 og Ásar og Grundir. Auk þess þarf að leggja fram breytingu á tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar/Bæjarbrautar vegna breyttrar útfærslu á hringtorgi við Litlatún/Flataskóla.
Málsnúmer 1305618
05
Vífilsstaðavegur og Bæjarbraut, deiliskipulag.
Ljóst að leggja þarf fram breytingartillögu á deiliskipulaginu til samræmis við tillögur Vegagerðarinnar um útfærslu hringtorgs á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Litlatúns og tengingar að Flataskóla.
Málsnúmer 1405177
06
Búðir, Ásbúð og Holtsbúð, deiliskipulag.
Lagt fram erindi frá Skipualgsstofnun dags 10.nóvember 2016 þar sem gerðar eru athugasemdir við útfærslu samþykktrar tillögu. Komið hefur verið til móts við athugasemdirnar með lagfæringum á tillögunni. Afla skal umsögn Minjastofnunar og senda stofnuninni þá húsakönnun sem unnin hefur verið.
Málsnúmer 1610132
07
Breiðakur 2-8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram tilllaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu fjölbýlishúsalóðanna Breiðakur 2-4 og 6-8 sem gerir ráð fyrir því að í stað bílastæða á milli húsanna verði gert ráð fyrir bílageymslum undir húsunum með aðkomu milli húsanna. Við það fækkar bílastæðum á lóð við götu úr 23 í 16.
Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir bárust. Tilllagan skoðast því samþykkt í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga.
Málsnúmer 1612105
08
Bakkaflöt 3 - viðbygging dsk breyting
Lögð fram tillaga að breytingum á íbúðarhúsinu að Bakkaflöt 3. Bílageymsla nær lítillega út fyrir byggingarreit. Skipulagsnefnd heimilar að við veitingu byggingarleyfis sé vikið frá kröfu 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga í samræmi við 3.mgr. sömu greinar.
Málsnúmer 1612146
09
Arnarnes, endurauglýsing deiliskipulags
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Arnarness sem er óbreytt frá áður samþykktu deiliskipulagi hverfisins að öðru leyti en því að nú er gert ráð fyrir 2 x 6 raðhúsálóðum efst í Hegranesi í stað 4 einbýlishúsa.
Skipulagsnefnd heimilar auglýsingu tillögunnar með ofangreindri breytingu í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga.
Fallið er frá lýsingu og forkynningu þar sem allar forsendur eru til staðar í aðalskipulagi.
Málsnúmer 1609347
10
Blikanes 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á íbúðarhúsinu Blikanes 10. Grenndarkynning hefur farið fram og engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir því ekki athugasemd við að byggingarleyfi veri veitt.
Málsnúmer 1612107
11
Vesturhraun 5a - DSK breyting
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns sem gerir ráð lóð fyrir spennistöð HS við lóðarmörk götustæðis Suðurhrauns og Suðurhrauni 12. Stærð lóðar um 35 m2.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns og vísar henni til grenndarkynningar. Grendarkynna skal lóðarhöfum að Suðurhrauni 3 og 12 sem og Vesturhrauni 3.
Málsnúmer 1612163
12
Mosagata 9-27 (9-15), dsk breyting
Lagðar fram hugmyndir um breytingar á lóðinni Mosagata 9-27. Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 1612052
13
Urriðaholtsstræti 36,38,40,42 - Dsk Breyting
Lögð fram tillaga að breytingum á nýsamþykktu deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.