Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Vesturhraun 5a.

Málsnúmer 1612107

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

10. (1776). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Vesturhraun 5a. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

3. fundur

Skipulagsnefnd samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Vesturhraun 5a, sem er lóð fyrir spennustöð.

Grenndarkynning fór fram samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga. Engar athugasemdir bárust.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

2. (804). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Molduhrauns í tilefni umsóknar um stofnun nýrrar lóðar fyrir spennustöð, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.

Bæjarráð Garðabæjar

04

2. (1768). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Molduhrauns í tilefni umsóknar um stofnun nýrrar lóðar fyrir spennustöð, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns sem gerir ráð lóð fyrir spennistöð HS við lóðarmörk götustæðis Suðurhrauns og Suðurhrauni 12. Stærð lóðar um 35 m2.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns og vísar henni til grenndarkynningar. Grendarkynna skal lóðarhöfum að Suðurhrauni 3 og 12 sem og Vesturhrauni 3.